Glímir aftur við glæpona 4. október 2012 03:00 Liam Neeson bregður sér aftur í hlutverk sérsveitarmannsins Bryans Mills. Í Taken 2 leitar hann fyrrverandi konu sinnar sem hefur verið rænt.
Spennumyndin Taken 2 verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað kvöld. Liam Neeson bregður sér aftur í hlutverk sérsveitarmannsins Bryans Mills. Ári eftir að sérsveitarmaðurinn Bryan Mills bjargaði dóttur sinni úr klóm mannræningja er hann staddur í fríi í Istanbúl. Dóttir hans og fyrrverandi eiginkona koma í óvænta heimsókn til hans en endurfundir fjölskyldunnar eru skammlífir. Glæpamaðurinn Murad Krasniqi leitar hefnda því Mills myrti son hans í París árinu áður. Krasniqi rænir því fyrrverandi eiginkonu Mills á meðan dóttir hins síðarnefnda leggur á flótta og aftur þarf Mills að nýta þekkingu sína til að bjarga ástvinum sínum úr klóm ósvífinna glæpamanna. Taken 2 er framhald spennumyndarinnar Taken frá árinu 2008. Aftur er það Luc Besson sem framleiðir myndina og skrifar handritið ásamt Robert Mark Kamen. Leikstjóri myndarinnar er hinn franski Olivier Megaton, en þeir Besson unnu einnig saman við gerð hasarmyndarinnar Colombiana, sem skartaði Zoe Saldana í aðalhlutverki. Taken 2 fær hörmulega dóma á kvikmyndavefnum Rottentomatoes.com og hlýtur aðeins 7 ferskleikastig af 100 mögulegum. Gagnrýnendur segja samtölin í myndinni kjánaleg og að það eina sem geri Taken 2 þolanlega sé atriðin þegar Mills stekkur á milli húsþaka í æsispennandi eltingaleik. Á kvikmyndasíðunni Londonfilmfanatiq.com segir að með Taken 2 hafi Besson og Kamen eyðilagt fyrra sköpunarverk sitt. Þrátt fyrir þessa neikvæðu dóma ætla 97 prósent lesenda Rottentomatoes.com að sjá myndina þegar hún kemur í kvikmyndahús. Liam Neeson fer aftur með hlutverk sérsveitarmannsins Bryans Mills, Maggie Grace fer með hlutverk Kim Mills, Famke Janssen leikur fyrrverandi eiginkonu Mills og Rade Šerbedžija leikur illmennið Murad Krasniqi.
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Hvað veistu um… London? Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Sjá meira