Sport

Kári: Hlakka til að vaða í steikina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Kári Steinn Karlsson.
Kári Steinn Karlsson. Mynd/Haraldur
Kári Steinn Karlsson viðurkennir að hann sé orðinn þreyttur á að borða kolvetnaríkt fæði í hvert mál, eins og hann þarf að gera nú í aðdraganda maraþonhlaupsins á morgun.

„Kvöldið fyrir keppni fæ ég mér líklega pasta í kvöldmat. Svo rétt áður en ég fer að sofa fæ ég mér hafrakex og kolvetnadrykk," segir hann. „Ég vakna svo um fjórum tímum fyrir hlaupið og fæ mér þá brauð, banana og kolvetnadrykk."

Hann segir að þetta taki sinn toll. „Maður verður hálf þungur í hausnum á þessu. En það er nauðsynlegt að hlaða líkamann og fylla á glýkógenbirgðir vöðvanna," segir Kári Steinn sem mun taka sér hvíld frá kolvetnum eftir morgundaginn.

„Það væri örugglega ekki leiðinlegt að vaða í góðan hamborgara eða væna steik eftir hlaupið," bætir hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×