Eiturlyf, kynlíf og Hells Angels 4. október 2012 02:00 Atriði með uppistandshópnum hafa verið sýnd í þættinum FunnyHaHa TV í Danmörku. fréttablaðið/stefán fréttablaðið/stefán
Grínatriði með uppistandshópnum Mið-Íslandi hafa að undanförnu verið sýnd í þættinum FunnyHaHa TV á dönsku sjónvarpsstöðinni Zulu og á milli dagskrárliða á stöðinni. „Við tókum upp helling af dóti og við eigum meira inni. Síðan ráðum við sjálfir hvort við notum eitthvað af því heima á Íslandi,“ segir Halldór Halldórsson úr Mið-Íslandi. Einnig hafa verið sýnd atriði á vefsíðunni Funnyhaha.dk og í einu slíku sem gerist í flugvél metast Halldór og tveir aðrir Mið-Íslands-menn um hvað þeir ætla að gera þegar þeir lenda í Kaupmannahöfn. Orðbragðið er nokkuð gróft í atriðinu þar sem eiturlyf, kynlíf og Hells Angels í Danmörku koma við sögu en Halldór kippir sér lítið upp við það. „Við erum líka grófir. Við eigum okkur margar hliðar,“ segir hann og veit ekki til þess að aldurstakmörk séu á gríninu. „Danir eru svo opnir og „ligeglad“. Það sem er rosalega klúrt í uppistandi er heldur ekkert svo dónalegt í „sketsum“.“ Eins og Fréttablaðið hefur greint frá var framleiðslufyrirtækið Douglas Entertainment, sem er stýrt af grínistanum Casper Christensen, á bak við upptökur Mið-Íslands fyrir FunnyHaHa TV í sumar. „Þegar við vorum þarna úti hittum við hann oft. Hann var hress og hefur gaman af Íslendingum,“ segir Halldór, spurður út í Christensen.- fb
Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Auður segir skilið við Gímaldið Menning Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Fleiri fréttir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Sjá meira