Jens Ólafsson: Brain Police snýr aftur og spilar í Frakklandi Fengu ógeð á hver öðrum 17. febrúar 2012 15:30 Frá vinstri: Hörður Ingi Stefánsson, Jens Ólafsson, Jón Björn Ríkharðsson og Gunnlaugur Lárusson í æfingahúsnæði sínu í vikunni . fréttablaðið/vilhelm
Rokkararnir í Brain Police eru komnir á fulla ferð á nýjan leik og spila á frönsku tónlistarhátíðinni Hellfest um miðjan júní. Þekktustu hljómsveitirnar á þessari vinsælu rokkhátíð í ár eru Guns N"Roses og Black Sabbath. „Það var bókari í Þýskalandi sem hafði samband því hann fann fyrir svo miklum hita fyrir okkur, sem kom okkur svolítið á óvart því það eru ein sex ár síðan við kláruðum síðustu plötu,“ segir söngvarinn Jens Ólafsson eða Jenni. „Það er fáránlegt að þetta Hellfest-dæmi skuli detta inn hjá bandi sem hefur ekki gefið út plötu í þetta langan tíma.“ Brain Police spilar á sviðinu The Valley laugardagskvöldið 16. júní. Önnur íslensk sveit, Sólstafir, stígur á svið á The Temple á sömu hátíð deginum áður. „Þetta verður geðveikt. Það verður ekkert smá skemmtilegt að fá að upplifa þetta.“ Brain Police hefur einnig verið bókuð á smærri tónlistarhátíð í Berlín í apríl sem nefnist Desert Fest. Að sögn Jenna er hljómsveitin að æfa á fullu þessa dagana og stefnan hefur verið sett á nýja plötu í byrjun næsta árs. Þrátt fyrir að hafa legið meira og minna í dvala síðustu ár er hún enn með útgáfusamning við bandaríska fyrirtækið Small Stone. „Hann er enn þá í gildi. Hann er orðinn mjög spenntur að fá næstu plötu hjá okkur. Hann var gríðarlega ánægður með að sjá okkur fara af stað aftur,“ segir söngvarinn kraftmikli um eiganda útgáfunnar. Jenni flutti til Danmerkur fyrir tveimur árum þar sem hann stundar nám í rafmagnstæknifræði. Hann býr því enn úti og þess vegna þurfa þeir félagar að haga seglum eftir vindi varðandi æfingar og annað slíkt. Inntur eftir því hvers vegna Brain Police hafi verið í svo löngu hléi segir hann að ósætti hafi komið upp í sveitinni. „Við fengum bara ógeð hver á öðrum. Þetta er eins og risastórt hjónaband að vera með þremur einstaklingum í hljómsveit. Það getur verið svolítið erfitt að púsla því saman, þannig að við vorum í raun og veru hættir. Þá ákvað ég að flytja út og það liðu ekki margir mánuðir þangað til hungrið var komið aftur í drengina.“ Allir upprunalegu meðlimir Brain Police eru núna í bandinu, þar á meðal gítarleikarinn Gunnlaugur Lárusson sem hætti á sínum tíma. Næstu tónleikar verða á Gauki á Stöng í kvöld og má búast við þéttu rokki og kófsveittri stemningu í salnum.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira