Einstök verk Emils vekja eftirtekt 17. febrúar 2012 10:30 Grafíski hönnuðurinn Emil Ásgrímsson vekur athygli í hönnunarheiminum í London fyrir klippiverk sín. „
Það er frekar skrýtin tilfinning að lesa um sjálfan sig og verk sín á netinu,“ segir Emil Ásgrímsson útskriftarnemi í grafískri hönnun við Central St. Martins í London. Emil opnaði fyrstu sýningu sína í London í gærkvöldi og hefur fengið töluverða athygli í erlendum hönnunarmiðlum. Verk hans eru svokölluð klippiverk þar sem tískuljósmyndum er blandað saman við ólíkar landslagsmyndir. „Faðir minn er jarðfræðingur og það að hafa íslenskt landslag tengist æskuminningum mínum.“ Sýning Emils er í galleríinu The Book Club í London en það kom Emil, sem útskrifast ekki fyrr en í vor, mikið á óvart að vera boðið að sýna þar. „Maður verður að grípa öll þau tækifæri sem gefast og þó að ég sé á fullu í lokaverkefninu ákvað ég að taka þátt í sýningunni. Maður vonar svo að það opnist einhverjar dyr í kjölfarið,“ segir hann en öll verk Emils eru til sölu á um 20.000 ísk. Vefmiðlarnir digitalartsonline.co.uk, designweek.co.uk og imperica.com fara fögrum orðum um kappann. „Það má vera að Emil sé ennþá nemi en það er ekki að sjá á verkum hans, sem eru samblanda af tísku- og landslagsmyndum. Þær bera vott um bæði þroska og æskuljóma,“ segir í umfjöllun Digital Arts Online. Emil sérhæfir sig í hreyfimyndagerð og ætlar sér að fara að vinna að námi loknu. „Maður er umvafinn snillingum hérna, bæði nemendum og kennurum. Þetta er samt rosalega harður heimur og mikil samkeppni í öllu. Manni er samt farið að lengja í laun eftir að hafa verið á framfærslu LÍN í fjögur ár.“ Hægt er að skoða verk Emils nánar á síðunni emilasgrimsson.com. -áp
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira