MS sjúklingar eygja von BBI skrifar 12. júlí 2012 14:03 Ingunn Jónsdóttir segir málin vera á jákvæðu nótunum.
Ingunn Jónsdóttir fagnar því að lyfið Gilenya verði innleitt hér á landi, en lyfið er við MS sjúkdómnum. Ingunn Jónsdóttir kom í viðtal í fréttum Stöðvar 2 í síðasta mánuði vegna málsins en hún hefur lengi beðið nýja lyfsins enda hætti hún að nota lyfið Tysabri vegna hættu á aukaverkunum. Nú hefur greiðsluþátttaka ríkisins í nýja lyfinu loks verið samþykkt en lyfið hafði lengi verið til á lager hjá innflutningsaðila þó stjórnsýslan hafi ekki tekið við sér fyrr en núna. „Þetta er auðvitað allt bara mjög á jákvæðu nótunum hjá okkur núna," segir hún en þó muni nokkur tími líða þar til hún fær lyfið. Aðeins fáir fá lyfið í byrjun og svo verður fjöldinn smám saman aukinn. Hún veit ekki hvenær nákvæmlega hún fær lyfið en telur þó öruggt að hún fái lyfið áður en árið er liðið. „Þetta nýja lyf verður alger bylting og mun breyta miklu fyrir MS sjúklinga. Þarna er einhver von," segir hún en bendir á að mjög misjafnt sé hvernig lyfið verkar á hvern og einn.
Tengdar fréttir Nýtt MS lyf samþykkt Greiðsluþátttaka ríkisins í MS lyfinu Gilenya hefur verið samþykkt, en Landspítalinn óskaði eftir flýtimeðferð á afgreiðslu umsóknar um innleiðingu lyfsins þann 28. júní síðastliðinn. 11. júlí 2012 14:12 Gilenya tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni MS-lyfið Gilenya verður tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni. Formaður MS félags Íslands segir það ánægjuefni og hafa mikla þýðingu fyrir þá sjúklinga sem fá lyfið. 11. júlí 2012 19:45 Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira
Nýtt MS lyf samþykkt Greiðsluþátttaka ríkisins í MS lyfinu Gilenya hefur verið samþykkt, en Landspítalinn óskaði eftir flýtimeðferð á afgreiðslu umsóknar um innleiðingu lyfsins þann 28. júní síðastliðinn. 11. júlí 2012 14:12
Gilenya tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni MS-lyfið Gilenya verður tekið í notkun á Landspítalanum á næstunni. Formaður MS félags Íslands segir það ánægjuefni og hafa mikla þýðingu fyrir þá sjúklinga sem fá lyfið. 11. júlí 2012 19:45