Mo Farah vann aftur: Gullverðlaunin eru fyrir ófæddar tvíburastelpur hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 19:44 Mo Farah fagnar sigri sínum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Bretinn Mohamed Farah tryggði sér í kvöld sigur í 5000 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í London en hann hafði áður unnið 10.000 metra hlaupið á leikunum. Mo Farah varð heimsmeistari í 5000 metrunum í Daegu í Suður-Kóreu fyrir ári síðan og er að sanna sig sem einn besti millivegahlaupari sögunnar. Mohamed Farah kom í mark á 13:41.66 mínútum en annar varð Dejen Gebremeskel frá Eþíópíu og Thomas Longosiwa frá Kenía fékk síðan bronsið. Það var mögnuð stemning á vellinum þegar hlaupið fór fram og Bretinn fékk einstakan stuðning. Mo Farah komst þarna í úrvalshóp manna sem hafa unnið tvöfalt í lengstu millivegahlaupunum á Ólympíuleikum en það eru menn eins og frá Emil Zatopek Tékklandi, Lasse Viren frá Finnlandi, Miruts Yifter frá Eþíópíu og svo Eþíópíumaðurinn Kenenisa Bekele sem vann tvöfalt á leikunum í Peking fyrir fjórum árum. „Það er stórkostlegt að vera búinn að vinna tvö gull. Hver hefði trúað þessu?," sagði Farah eftir sigurinn en hann kom til Bretlands með föður sínum þegar hann var aðeins átta ára gamall. „Ég fékk frábæran stuðning frá áhorfendum og það skiptir mig miklu máli. Þessi gullverðlaun eru samt fyrir dætur mínar sem eru á leiðinni," sagði Mo Farah en kona hans er ófríss af tvíburastelpum.
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Fótbolti Fleiri fréttir „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Vrkić í Hauka Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Sjá meira