Þrautreyndur Gijs aldrei heyrt um Maus 12. janúar 2012 08:00 Gijs van Veldhusizen í Maus hefur ekki miklar áhyggjur af nafnabreytingunni. „
Ég vissi ekki að þeir væru til,“ segir Gijs van Veldhuizen í hollensku hljómsveitinni Maus. Hann hefur ákveðið að breyta nafni hljómsveitarinnar, líkast til í Mauz, eftir að Biggi í Maus kvartaði yfir nafni þeirra, enda hefur hin íslenska Maus einkaréttinn á nafninu í Evrópu. „Ég gæti hafa séð þá á Google en líklega leiddi ég þá hjá mér vegna þess að þar stóð að þeir hefðu ekki starfað í langan tíma,“ segir Gijs, sem er ekkert að æsa sig yfir nafnabreytingunni. „Þar sem Maus er nýtt verkefni hjá mér þá verður ekkert svo mikið mál að breyta nafninu. Hin hljómsveitin mín, Audiotransparent, hefur verið starfandi miklu, miklu lengur. Ég hef starfað í tónlistarbransanum í um fimmtán ár og ég veit hvers virði vörumerki getur verið. Í þessu tilfelli hefur hin íslenska Maus lagt mikið á sig til að búa til gott vörumerki.“ Gijs í Maus heldur áfram: „Biggi hafði samband við mig og lýsti yfir áhyggjum sínum af mögulegum misskilningi vegna nafnsins. Við áttum vinsamleg tölvusamskipti og það er líka gaman að kynnast nýju fólki í tónlistarbransanum.“ Eins og Fréttablaðið hefur greint frá munu Gijs og félagar spila undir nafninu Maus á hátíðinni Eurosonic í kvöld. Það verða vafalítið síðustu tónleikar þeirra undir því nafni. Gijs hefur einnig lýst yfir áhuga á að hita upp fyrir Maus ef íslenska sveitin kemur saman aftur og ítrekaði hann þann áhuga í viðtali við blaðamann. „Biggi var nokkuð hrifinn af hugmyndinni, þannig að hver veit? Kannski munu vinaleg samskipti okkar verða til þess að við spilum í fyrsta sinn á Íslandi.“ -fb
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Fleiri fréttir Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Sjá meira