Átta ára gömul bók á toppnum 20. febrúar 2012 21:00 Stefán Máni er mjög sáttur við viðbrögðin sem nýja kiljan hefur fengið. Fréttablaðið/Vilhelm
Svartur á leik eftir Stefán Mána fór beint á toppinn hjá Forlaginu og í annað sætið hjá Eymundsson eftir að hafa verið ófáanleg í mörg ár. „Það er löngu kominn tími á að lesendur fái þessa bók aftur," segir Stefán Máni, sem ætlar að hrifsa toppsætið hjá Eymundsson af Jo Nesbö í vikunni. „En þetta er flott á fjórum dögum enda átta ára gömul bók." Svartur á leik kom út fyrir jólin 2004 en toppaði mjög seint að mati Stefáns Mána. „Það var ekkert gert fyrir hana. Hún var ekkert auglýst eða kynnt. Svo kom hún út í kilju strax eftir áramótin og þá rauk hún út. Þetta er svolítil öskubuskusaga," segir hann og á við gömlu kiljuútgáfuna sem seldist í um fimm þúsund eintökum. Það var gamla Mál og menning sem gaf bókina út en Forlagið gefur út þá nýju. Nýja kiljan er einni blaðsíðu lengri en sú gamla. „Ég skrifaði nýjan og stuttan uppafskafla í hana. Þetta er eins og með súkkulaðistykkin, X-prósent meira. Það er aðeins meiri stæll yfir þessu núna og gaman að hafa leikarana framan á kápunni." Kvikmyndin Svartur á leik verður frumsýnd hér heima í byrjun mars og Stefán Máni á enn eftir að sjá hana. „Ég hafði tækifæri í desember en var slappur og fór ekkert. Svo hef ég ekkert verið að stressa mig á því en mig langar rosalega að mæta á frumsýninguna og sjá hana í bíó með öllum hinum." Aðspurður segist hann vera með nýja bók í smíðum og í þetta sinn verður hryllingurinn í fyrirrúmi. „Þetta er stór hrollvekja sem ég er með á teikniborðinu. Ég er mjög spenntur. Ég er búinn að vera skíthræddur sjálfur og ligg andvaka yfir eigin rugli. Það er ágætt." -fb
Mest lesið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Sjá meira