Lífið

Rihanna ólík sjálfri sér

MYND / COVER MEDIA
Barbados-bjútíið Rihanna er seiðandi og sæl í nýrri auglýsingu fyrir ilminn sinn Nude.

Rihanna er klædd í bikiní, með ofurljóst hár og afskaplega glöð á svip. Þessi Rihanna hefur ekki verið áberandi í sviðsljósinu upp á síðkastið því það virðist hafa verið ansi þungt yfir okkar konu.

Það er svo sem ekki skrýtið því fólk út um allan heim elskar að velta sér upp úr því hvort hún sé byrjuð aftur með Chris Brown. Hann hefur játað í myndbandi að elska bæði Rihönnu og fyrrverandi kærustu sína, Karrueche Tran og hafa Chris og Rihanna sést mikið saman upp á síðkastið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.