Heimsmethafinn keppir ekki í maraþoninu Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 12. ágúst 2012 09:00 Patrick Makau frá Keníu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Patrick Makau frá Keníu verður ekki á meðal keppanda í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London í dag, þó svo að hann hafi sett heimsmet í greininni í fyrra. Það gerði hann í Berlínarmaraþoninu þegar hann kom í mark á 2:03,38 klst. Kári Steinn Karlsson varð sautjándi í þessu sama hlaupi á 2:17,12 klst og tryggði sér þar með þátttökurétt á leikunum í London. Hver þjóð má aðeins senda þrjá hlaupara til leiks en langflestir úr hópi bestu maraþonhlaupara heims koma frá Keníu og Eþíópíu. Makau tók þátt í Lundúnarmaraþoninu fyrr á þessu ári en þurfti að hætta vegna meiðsla. Var hann ekki valinn í keppnislið Keníu af þeim sökum. Einn þekktasti maraþonhlapuari allra tíma, Haile Gebrselassie, verður ekki heldur með en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Gebrselassie er 39 ára gamall og stefndi að því að ljúka ferlinum á leikunum í ár. Gebrselassie var heimsmethafinn í greininni þar til að Makau sló metið hans í Berlín í fyrra. Gebrselassie vann einnig gull í 10 km hlaupi á Ólympíuleikunum 1996 og 2000 en sneri sér þá að maraþoni. Líklegast er að hlaupari frá Keníu eða Eþíópíu beri sigur úr býtum í keppninni í dag. Abel Kirui, tvöfaldur heimsmeistari í greininni, Wilson Kipsang og Emmanuel Mutai hlaupa fyrir Keníu en þeir tveir síðastnefndu hafa unnið Lundúnarmaraþonið síðustu tvö ár. Fulltrúar Eþíópíu eru einnig ógnarsterkir. Ayele Abshero hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir ungan aldur en hann er einungis 21 árs gamall. Hann hljóp sitt fyrsta maraþon á ferlinum fyrr á þessu ári og skilaði sér þá í mark á 2:04,23 klst sem er fjórði besti tími frá upphafi og sá besti í ár. Hinir eru Dino Sefir og Getu Feleke en báðir hafa hlaupið undir 2:05 klst á þessu ári. Ólympíumeistarinn frá leikunum í Peking fyrir fjórum árum síðan er Sammu Wanjiru frá Keníu en hann lést í fyrra. Wanjiru stökk fram af svölunum á húsi sínu eftir að kona hans kom að honum með annarri konu í rúminu. Wanjiru setti nýtt Ólympíumet í Peking þegar hann kom í mark á 2:06,32 klst.
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Vrkić í Hauka Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Flagg fer til Dallas Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sjá meira