Ekki ólíklegt að makríllinn hafi áhrif á hrefnuna BBI skrifar 15. júlí 2012 17:45
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, telur ekki ólíklegt að makrílstofninn geti haft áhrif á hrefnugengd við landið. Makríll í íslenskri lögsögu hefur aukist mjög á síðustu árum en hann nærist meðal annars á sandsílum þó rannsóknir okkar síðustu árin bendi til þess að krabbasvifdýr sé mikilvægasta fæða hans hér við land. Hrefnur nærast sömuleiðis á sandsílum og því ekki ólíklegt að stofnarnir lendi í ákveðinni samkeppni um næringu. „En hvaða áhrif það hefur á hvernig gengur að sjá hrefnur við landið veit ég ekki," segir Jóhann. Í liðinni viku veltu menn fyrir sér hvort makríllinn væri að hafa slæm áhrif á hrefnur við landið. Í fréttum Vísis í gær kom fram að hvalaskoðunarmenn hefðu meiri áhyggjur af hrefnuveiðum heldur en makrílgöngunni við landið. Jóhann vill ekkert fullyrða um hvort hafi meiri áhrif, makríllinn eða hrefnuveiðar. „Það liggja ekki fyrir neinar rannsóknir eða gögn sem bera þetta sérstaklega saman," segir hann. Hann veit ekki til þess að neitt bendi sérstaklega til þess að hrefnuveiðar hafi slæm áhrif á hvalaskoðun. Hann segir hrefnustofninn á svæðinu svo stóran að litlu breyti þó veitt séu „örfá dýr úr honum“. Hann minnir einnig á rannsóknir sem sýnt hafa að hrefnur sækja alltaf á sama staðinn á hverju ári, jafnvel þó afkvæmi þeirra eða foreldrar hafi verið veidd á sama stað. „Svo það bendir ekkert til að veiðar hafi nein varanleg áhrif á hegðun hrefnunnar," segir Jóhann.
Tengdar fréttir Stefnir í metsumar í hvalaskoðun Það stefnir í metsumar í ár hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu sem gerir út frá Reykjavíkurhöfn. Sé bara horft á sumarið er útlit fyrir 20% aukningu frá því í fyrra. Sé veturinn tekinn með í reikninginn blasir við 40-50% aukning en veturinn var sérlega góður í ár. 14. júlí 2012 17:18 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira
Stefnir í metsumar í hvalaskoðun Það stefnir í metsumar í ár hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu sem gerir út frá Reykjavíkurhöfn. Sé bara horft á sumarið er útlit fyrir 20% aukningu frá því í fyrra. Sé veturinn tekinn með í reikninginn blasir við 40-50% aukning en veturinn var sérlega góður í ár. 14. júlí 2012 17:18