Erlent

Flestir flokkarnir boða íslamskt ríki

Stuðningsmenn Réttlætis- og uppbyggingarflokksins, sem er flokkur Bræðralags múslima, hafa verið iðnir við að kynna stefnu sína síðustu daga.nordicphotos/AFP
Stuðningsmenn Réttlætis- og uppbyggingarflokksins, sem er flokkur Bræðralags múslima, hafa verið iðnir við að kynna stefnu sína síðustu daga.nordicphotos/AFP
Líbíumenn hafa margir beðið óþreyjufullir eftir því að fá nýja stjórn í staðinn fyrir bráðabirgðaráðið sem stjórnað hefur landinu frá því Múammar Gaddafí var steypt af stóli síðasta sumar.

Bráðabirgðaráðið var stofnað af andstæðingum Gaddafís strax á fyrstu vikum uppreisnarinnar.

„Bráðabirgðaráðið hagar sér eins og hauslaus hani,“ segir Yassar al Bashti, einn þeirra sem bjóða sig fram til þings, en í dag ganga Líbíumenn til kosninga og kjósa bráðabirgðaþing sem á að stjórna þangað til ný stjórnarskrá hefur verið samin.

Nýja þingið á að velja sér ríkisstjórn, en innan árs á svo stjórnlagaþing, sem enn er ókjörið, að hafa lokið við gerð nýrrar stjórnarskrár.

Hátt í fjögur hundruð stjórnmálaflokkar eru í framboði, en fjórir þeirra virðast eiga mestan stuðning. Engum þeirra er spáð hreinum meirihluta á þingi þannig að niðurstaðan verður líklega sú að mynda þurfi samsteypustjórn tveggja eða fleiri flokka að kosningum loknum.

Stjórnmálaskýrendur telja að Líbíumenn kjósi sér flokka eftir því hvort frambjóðendur þeirra eru þekktir einstaklingar, frekar en að spá mikið í hugmyndafræði flokkanna.

Íbúar landsins eru langflestir múslímar. Þeir eru almennt íhaldssamir og nánast allir stjórnmálamenn eru þeirrar skoðunar að íslömsk lög eigi að gegna hlutverki í stjórnskipan landsins.

Spennan í kosningunum snýst helst um það hvort vesturhluti landsins eða austurhlutinn verður ráðandi, eða hvort mönnum tekst að finna viðunandi jafnvægi þarna á milli.

Höfuðborgin Trípolí er í vesturhlutanum og þar átti Gaddafí mestan stuðning, en uppreisnin hófst í austurhlutanum þar sem andstaðan við Gaddafí var sterkust.

Í austurhlutanum eru einnig miklar olíulindir sem íbúarnir þar vilja ekki láta íbúa höfuðborgarinnar sitja eina að.

„Við viljum ekki að Trípolí stjórni öllu landinu,“ segir Fadlallah Haroun, einn af uppreisnarforingjunum frá Benghazi, borginni í austurhluta landsins þar sem uppreisnin hófst.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×