Tilnefnd til Óskarsverðlauna útivistageirans 30. janúar 2012 07:15 Jan Davidsson hannaði Eldborgar jakkann frá 66°Norður sem tilnefndur er til ISPO-verðlaunanna. Hann er einnig einn af dómurum þáttarins Hannað fyrir Ísland sem hefur göngu sína innan skamms.fréttablaðið/vilhelm
Nýr jakki frá 66°Norður hlaut fyrir skemmstu tilnefningu til ISPO-verðlaunanna sem veitt eru í tengslum við ISPO sýninguna í München. Sýningin er ein sú stærsta í útivistar- og íþróttaiðnaðinum. Jakkinn sem tilnefndur var kallast Eldborg og var hann tilnefndur í flokknum Outdoor Style. Um 260 framleiðendur senda inn vörur í samkeppnina en aðeins fáar eru tilnefndar í hverjum flokki. Þetta er annað árið í röð sem 66°Norður er tilnefnt til verðlaunanna en jakkinn Snæfell sigraði í sínum flokki í fyrra. Jan Davidsson, yfirhönnuður 66°Norður, hannaði báða jakkana og segir það óneitanlega mikla viðurkenningu að fá tilnefningu annað árið í röð. „Maður finnur vissulega til þakklætis því hátíðin er mjög virt og mætti kannski líkja henni við Óskarinn í okkar geira. En gleðin felst þó fyrst og fremst í sköpuninni sjálfri og ekki verðlaununum," segir hann. Jan hefur starfað sem hönnuður hjá 66°Norður með hléum frá árinu 1990. Árið 2002 tók hann við sem yfirhönnuður og lagði þá drög að breyttum áherslum í fatalínu fyrirtækisins. Jan er einnig einn af dómurunum í sjónvarpsþáttunum Hannað fyrir Ísland sem hefja göngu sína á Stöð 2 innan skamms. Hann kveðst í upphafi hafa verið tregur til þátttöku en að lokum látið til leiðast. „Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og þátttakendurnir yndislegir sem og tökuliðið. Miðað við að það þurfti að pína mig í þetta kom það mér á óvart hversu skemmtilegt þetta var og hversu lítið feiminn ég var," segir Jan og bætir við að hann hafi séð fyrsta þáttin og litist vel á. „Ef hinir þættirnir koma illa út verð ég bara að flytja burt."- sm
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira