Undirbúa forvarnir gegn netfíkn barna 17. júlí 2012 06:00 Guðberg K. Jónsson, verkefnastjóri hjá SAFT, segir áætlun um forvarnir gegn netfíkn í undirbúningi. fréttablaðið/vilhelm
SAFT beinir heilræðum til barna og fullorðinna um hvernig megi komast hjá því að ánetjast tölvunni. Netfíkn barna vaxandi vandamál. Dæmi um að börn undir 18 ára spili fjárhættuspil á netinu. Foreldrar setji ekki myndir á netið. Töluvert er um að foreldrar sem hafa áhyggjur af mikilli netnotkun barna sinna hringi í fulltrúa SAFT sem er vakningarátak um örugga notkun íslenskra barna og unglinga á netinu. „Við sinnum ekki einstökum málum en við vísum á sálfræðinga sem foreldrar geta leitað til með börn sín. Þetta er eitt af því sem er á okkar verkefnalista, það er að miðla upplýsingum um hvert hægt er að leita,“ segir Guðberg K. Jónsson, verkefnastjóri hjá SAFT. Fréttablaðið greindi frá því í gær að stór hópur þeirra 14 til 18 ára drengja sem væru í meðferð á göngudeild Barna- og unglingadeildar Landspítalans glímdi við netfíkn. Í alvarlegustu tilfellunum væru börnin lögð inn þar sem þau væru beinlínis í lífshættu vegna þunglyndis og vanvirkni, að sögn Guðlaugar Maríu Júlíusdóttur, verkefnastjóra félagsráðgjafar á kvenna- og barnasviði Landspítalans. Guðberg segir netfíkn barna vera vaxandi áhyggjuefni, ekki bara á Íslandi heldur einnig hjá samstarfsaðilum SAFT í Evrópu. „Við erum að undirbúa forvarnafræðsluefni sem beint verður bæði til barna og fullorðinna með styrk frá Evrópusambandinu. Þetta verða heilræði um hvernig komast megi hjá því að ánetjast tölvunni. Við munum sinna þessu næstu tvö árin á meðan þessi áætlun er í gangi.“ Dæmi eru um að börn undir 18 ára aldri spili fjárhættuspil á netinu, að því er Guðberg greinir frá. „Við höfum heyrt dæmi um slíkt þótt þau hafi ekki komið inn á okkar borð. Forvarnirnar munu einnig ná til þessa þáttar. Flest systursamtök okkar í Evrópu leggja áherslu á að sinna þessum þáttum.“ Guðberg ráðleggur foreldrum að kynna sér netvara sem í boði eru hjá símafyrirtækjum auk forrita sem hægt er að kaupa á netinu. Hann segir jafnframt ástæðu til að vara foreldrana sjálfa við netnotkun. „Eitt af heilræðunum sem við höfum haldið úti er að foreldrar setji ekki sumarfrísmyndir af léttklæddum börnum sínum á netið og ekki heldur texta. Við þekkjum dæmi um að myndir af íslenskum börnum hafi fundist á erlendum síðum þar sem búið er að taka þær úr samhengi. Það eru fleiri en eitt dæmi um slíkt. Myndir hafa til dæmis verið teknar af Barnalandi og settar á aðrar síður. Það er nánast ómögulegt að ná þeim þegar þær eru komnar í umferð. Það þurfa allir að fara varlega varðandi notkun netsins.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira