Kvikmyndaskóli Íslands verður hluti af „klíkunni“ 17. febrúar 2012 12:00 Hilmar segir það mikinn heiður að hafa fengið inngöngu í alþjóðasamtökin Cilect. fréttablaðið/gva
Kvikmyndaskóli Íslands verður í vor vígður inn í alþjóðasamtök helstu kvikmyndaskóla heimsins, Cilect. Mikill heiður, að mati Hilmars Oddssonar. „Þetta er rosalega ánægjulegt og mikill heiður,“ segir Hilmar Oddsson, rektor Kvikmyndaskóla Íslands. Skólinn hefur verið samþykktur inn í alþjóðasamtök helstu kvikmyndaskóla heimsins. Þau nefnast Cilect og voru stofnuð árið 1955. Aðeins 130 kvikmyndaskólar í heiminum eiga aðild að þeim og telst það mikill gæðastimpill að komast þangað inn. „Það skiptir mjög miklu máli að vera í þessum samtökum. Í öllum okkar erfiðleikum þótti okkur alltaf sorglegt að vera nánast búin að sigra heiminn en þurfa að berjast fyrir tilvist okkar á Íslandi. Við vitum ekki nákvæmlega hvað verður um okkur en við erum samt komin með alþjóðlega viðurkenningu,“ segir Hilmar, sem er kominn aftur til starfa sem rektor eftir að hafa hætt störfum tímabundið í fyrra. „Núna verðum við hluti af ákveðnu gæða- og verndunarkerfi. Cilect heldur tvö til þrjú þing á hverju ári og þarna eru nemendaskipti, skipti á kennurum og við komumst inn á alls konar hátíðir. Við erum komin inn í ákveðið samfélag og erum bara hluti af „klíkunni“. Það er ofsalega mikilvægt.“ Kvikmyndaskóli Íslands verður formlega vígður inn í skólann á aðalfundi Cilect sem verður haldinn í Höfðaborg í Suður-Afríku í byrjun maí og þar verður Hilmar viðstaddur. Skólinn sótti um að komast í samtökin fyrir ári síðan. Enski kvikmyndaframleiðandinn Nik Powell, sem er skólastjóri The National Film and Television School í London og stofnaði á sínum tíma Virgin Group ásamt Richard Branson, kom hingað til lands í fyrra á vegum Cilect. Hann gerði úttekt á starfsemi Kvikmyndaskólans og gaf henni hæstu einkunn. Þetta var áður en rekstrarvandræði skólans komust í fréttirnar. „Hann fór í gegnum allt kerfið og námsskrána og svo skrifaði hann skýrslu sem varð til þess að okkur var boðin þátttaka,“ segir Hilmar og bætir við að bæði Powell og stjórnendur annarra kvikmyndaskóla hafi haft mikinn skilning á vandræðum skólans. „Við sendum alltaf skýrslur út og sögðum hvað var í gangi. Við fengum mjög eindregið stuðningsbréf frá þessum manni. Við erum ekki eini skólinn í heiminum sem hefur þurft að berjast fyrir tilveru sinni.“ Vegna fjaðrafoksins í kringum Kvikmyndaskólann tafðist starfsemi hans og núna er að ljúka önn sem átti að klárast fyrir jól. Útskriftarmyndir verða sýndar í Bíói Paradís í næstu viku. „Við erum með tveggja anna samning við ráðuneytið og vitum ekki hvort ætlunin er að semja við okkur eftir næstu vorönn,“ greinir Hilmar frá en nokkur pláss fyrir nemendur eru enn laus fyrir næstu önn. „Það veikir okkur út á við ef við höldum ekki fullri reisn og njótum ekki almenns stuðnings. Ef ráðamenn þjóðarinnar kæra sig um er þetta skóli sem getur átt glæsilega framtíð fyrir sér.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Með sálfræðigráðu á leið í skartgripahönnun í Róm Tíska og hönnun Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lífið Hver er Thomas Skinner? Tryllingur, framhjáhald og myndarlegar máltíðir Lífið Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Lífið Hágrét þegar hún sagði mömmu að hún tæki ekki við búðinni Lífið „Það jafnast enginn á við þig“ Lífið Enginn að rífast í partýi á Prikinu Lífið Fólk vilji ekki bara sjá þetta á Instagram Menning Hljóp undir fölsku nafni Lífið Með Banksy í stofunni heima Menning Fleiri fréttir Hver er Thomas Skinner? Tryllingur, framhjáhald og myndarlegar máltíðir Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Enginn að rífast í partýi á Prikinu Hljóp undir fölsku nafni Úrslitaspurningin var um húðflúr aðalleikarans í Breaking Bad „Það jafnast enginn á við þig“ Hágrét þegar hún sagði mömmu að hún tæki ekki við búðinni Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lítill rappari á leiðinni Ljúffengar uppskriftir undir tuttugu mínútum Fátt skemmtilegra en að klappa Einari á afturendann á almannafæri Haustlestur: Gotneskur drungi, magnaður sannleikur og boltarnir hans Trump Í fullkomnu starfi sem listrænn skipulagspési Krakkatían: Lína Langsokkur, Vegbúi og Afríka Hamingjustund þjóðarinnar í beinni útsendingu Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Bakaríið í beinni útsendingu „Vökvagjöfin er ekki bara eitthvað sem ég trúi á“ Fréttatía vikunnar: Heimsmet, fúkyrði og brjóstahaldari Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Ágústa Eva slær sér upp með KR-ingi Fagurfræði og ævintýralegt gróðurhús í Fossvogi Innviðaráðherra á von á barni Búið spil hjá Burton og Bellucci Hlaupadrottning eignaðist dreng með hraði Bjó til útibíó við heita pottinn og með gerviblóm í garðhúsinu Danir með en keppnin sögð í fordæmalausri krísu Emilíana Torrini fann ástina Heitustu naglatrendin fyrir haustið Rooney getur ekki farið til Bretlands af ótta við að verða handtekin Sjá meira