Eva: Ekki alein í stresskasti Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 3. ágúst 2012 06:00 Mynd/Valli
Vísir kynnir til leiks íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Nú er komið að Evu Hannesdóttur sem syndir með boðsundssveit Íslands í 4x100 m fjórsundi. Með Evu í sveitinni eru þær Eygló Ósk Gústafsdóttir (baksund), Sarah Blake Bateman (flugsund) og Hrafnhildur Lúthersdóttir (bringusund) en sjálf syndir hún skriðsund. Eva er sú eina í sveitinni sem keppir ekki í einstaklingsgrein og sú eina sem á enn eftir að stinga sér til sunds í Ólympíulauginni. Leið Evu á leikana var óhefðbundin enda gerði hún aldrei ráð fyrir því að komast inn. Hún hafði ekki keppt á Íslandi í þrjú ár þegar hún keppti á Íslandsmeistaramótinu í apríl en út frá því komst hún inn á Evrópumeistaramótið í Ungverjalandi í maí. Þar átti Ísland skráða sveit í boðsundskeppnina og var ákveðið að Eva myndi synda skriðsundssprettinn þar sem hún hafði náð besta tímanum af íslensku konunum í 100 m skriðsundi á mótinu. Sveitin stórbætti Íslandsmetið og náði nægilega góðum tíma til að komast inn á Ólympíuleikana. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland á boðsundssveit á Ólympíuleikum og því um sögulegan viðburð að ræða. Eva segist vera klár í slaginn og að hún hafi æft vel í sumar. „Ég var í bæði Englandi og Frakklandi með landsliðinu og það gekk mjög vel. Þessar ferðir þjöppuðu hópnum mjög vel saman," sagði hún við Vísi. Hún segir það ólíka reynslu að keppa í einstaklingsgrein eða boðsundi. „Ég verð þá ekki í stresskasti alein inni í keppnisherbergi fyrir keppnina," sagði hún og brosti. „Við getum hvatt hvora aðra áfram sem er afar jákvætt." Eva hefur æft með háskólaliði sínu í Bandaríkjunum undanfarin ár og aðallega keppt í 200 m skriðsundi þar. „100 metrarnir hafa þó alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. En mér finnst báðar skemmtilegar og 100 metrarnir eru bara nokkuð góðir hjá mér." „Ég er með ákveðinn tíma í huga fyrir minn sprett en ég ætla að halda honum fyrir mig. Við ætlum þó allar að gera okkar besta og markmiðið er auðvitað að slá Íslandsmetið sem við settum í Ungverjalandi."Eva Hannesdóttir 25 ára úr KRÓL-grein: 3. ágúst: 4x100 m fjórsund
Tengdar fréttir Eygló: Kvefast alltaf fyrir stórmót Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkonan unga, stingur sér í Ólympíulaugina í dag í fyrsta sinn. 29. júlí 2012 06:00 Sarah Blake: Betra en í Peking Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Hin hálfbandaríska Sarah Blake Bateman er nú að keppa sínum öðrum leikum fyrir Íslands hönd. 28. júlí 2012 07:00 Hrafnhildur: Ætla ekki að örvænta Vísir kynnir til leiks íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í London. Hrafnhildur Lúthersdóttir stingur sér til sunds í 100 m bringusundi í dag. 1. ágúst 2012 06:00 Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Körfubolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Brentford hafnaði tilboði Manchester United Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Eva Margrét sjöunda á EM Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Sjá meira
Eygló: Kvefast alltaf fyrir stórmót Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkonan unga, stingur sér í Ólympíulaugina í dag í fyrsta sinn. 29. júlí 2012 06:00
Sarah Blake: Betra en í Peking Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Hin hálfbandaríska Sarah Blake Bateman er nú að keppa sínum öðrum leikum fyrir Íslands hönd. 28. júlí 2012 07:00
Hrafnhildur: Ætla ekki að örvænta Vísir kynnir til leiks íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í London. Hrafnhildur Lúthersdóttir stingur sér til sunds í 100 m bringusundi í dag. 1. ágúst 2012 06:00