Sport

Eva: Ekki alein í stresskasti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Vísir kynnir til leiks íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Nú er komið að Evu Hannesdóttur sem syndir með boðsundssveit Íslands í 4x100 m fjórsundi.

Með Evu í sveitinni eru þær Eygló Ósk Gústafsdóttir (baksund), Sarah Blake Bateman (flugsund) og Hrafnhildur Lúthersdóttir (bringusund) en sjálf syndir hún skriðsund. Eva er sú eina í sveitinni sem keppir ekki í einstaklingsgrein og sú eina sem á enn eftir að stinga sér til sunds í Ólympíulauginni.

Leið Evu á leikana var óhefðbundin enda gerði hún aldrei ráð fyrir því að komast inn. Hún hafði ekki keppt á Íslandi í þrjú ár þegar hún keppti á Íslandsmeistaramótinu í apríl en út frá því komst hún inn á Evrópumeistaramótið í Ungverjalandi í maí.

Þar átti Ísland skráða sveit í boðsundskeppnina og var ákveðið að Eva myndi synda skriðsundssprettinn þar sem hún hafði náð besta tímanum af íslensku konunum í 100 m skriðsundi á mótinu. Sveitin stórbætti Íslandsmetið og náði nægilega góðum tíma til að komast inn á Ólympíuleikana.

Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland á boðsundssveit á Ólympíuleikum og því um sögulegan viðburð að ræða.

Eva segist vera klár í slaginn og að hún hafi æft vel í sumar. „Ég var í bæði Englandi og Frakklandi með landsliðinu og það gekk mjög vel. Þessar ferðir þjöppuðu hópnum mjög vel saman," sagði hún við Vísi.

Hún segir það ólíka reynslu að keppa í einstaklingsgrein eða boðsundi. „Ég verð þá ekki í stresskasti alein inni í keppnisherbergi fyrir keppnina," sagði hún og brosti. „Við getum hvatt hvora aðra áfram sem er afar jákvætt."

Eva hefur æft með háskólaliði sínu í Bandaríkjunum undanfarin ár og aðallega keppt í 200 m skriðsundi þar. „100 metrarnir hafa þó alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. En mér finnst báðar skemmtilegar og 100 metrarnir eru bara nokkuð góðir hjá mér."

„Ég er með ákveðinn tíma í huga fyrir minn sprett en ég ætla að halda honum fyrir mig. Við ætlum þó allar að gera okkar besta og markmiðið er auðvitað að slá Íslandsmetið sem við settum í Ungverjalandi."

Eva Hannesdóttir

25 ára úr KR

ÓL-grein:

3. ágúst: 4x100 m fjórsund


Tengdar fréttir

Eygló: Kvefast alltaf fyrir stórmót

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkonan unga, stingur sér í Ólympíulaugina í dag í fyrsta sinn.

Sarah Blake: Betra en í Peking

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Hin hálfbandaríska Sarah Blake Bateman er nú að keppa sínum öðrum leikum fyrir Íslands hönd.

Hrafnhildur: Ætla ekki að örvænta

Vísir kynnir til leiks íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í London. Hrafnhildur Lúthersdóttir stingur sér til sunds í 100 m bringusundi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×