Sport

Sarah ætlaði að hætta: Get ekki hætt á þessum nótum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Sarah Blake Bateman fékk aðeins átta mínútur til að gera sig klára fyrir aukasund í 50 m skriðsundi í dag og mátti hún sætta sig við að komast ekki áfram í 16-manna úrslit. Hún hafði aldrei tapað aukasundi á ferlinum fyrr en í dag.

Sarah Blake kom í mark í 16.-18. sæti í undanrásunum í morgun og synti þá á 25,28 sekúndum sem er aðeins 0,04 sekúndum frá Íslandsmeti hennar.

Amy Smith frá Bretlandi vann aukasundið á 24,82 sekúndum en skráður tími á Söruh var 26,03 sekúndur. Hún segist þó telja að sá tími sé rangur.

„Ég veit að ég vann ekki riðilinn en ég fór ekki svona hægt heldur," sagði hún. Á sjónvarpsupptöku má sjá að hún kom í mark á mjög svipuðum tíma og hin bandaríska Kara Lynn Joyce en tíminn hennar var 25,16 sekúndur.

„Klukkan var ekki stöðvuð á réttu augnabliki," bætti hún við.

„Ég er samt ánægð, sérstaklega þar sem að þetta var aðeins átta mínútum á eftir boðsundið. Ég var því svolítið þreytt en það hefði ekki átt að breyta neinu," sagði hún.

„Það er þó gaman að hafa fengið að synda aftur, þó svo að það hafi verið í aukasundi."

Hún neitar því þó ekki að það hafi haft áhrif. „Kannski hafði það meiri áhrif á hugarfarið en líkamann. Ég vil þó alls ekki skella skuldinni á boðsundið."

Hún segir að best hefði verið að synda í aukasundinu fyrir boðsundið. „Það er auðveldara að koma úr 50 m sundi í 100 m sund en öfugt. En það hefði aldrei komið til greina að draga mig úr boðsundssveitinni. Við lögðum mikið á okkur til að komast hingað og ef ég hefði þurft að velja á milli hefði ég valið boðsundið."

Sarah hefur ávallt náð sínu besta fram í aukasundi, sem nefnist swim-off á ensku. „Alltaf. Ég hef aldrei tapað aukasundi áður. En svona er þetta bara."

„Þetta er samt minn besti árangur á Ólympíuleikum og mér gekk mun betur hér en í Peking árið 2008."

Hún segist hafa ætlað að hætta keppni í sundi eftir þessa leika en að það hafi nú breyst. „Það gengur ekki að ljúka sundferlinum með því að tapa aukasundi," sagði hún og brosti. „Ég verð því líklega eitthvað áfram í þessu."


Tengdar fréttir

Sarah þarf að keppa um laust sæti í undanúrslitum

Sarah Blake Bateman kom fyrst mark í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London í morgun. Sarah, sem er 22 ára og syndir fyri Sundfélagið Ægi, kom í mark á 25,28 sek., en Íslandsmet hennar er 25,24 sem hún setti í Ungverjalandi á þessu ári.

Sarah fer beint úr boðsundinu í bráðabana

Sarah Blake Bateman hefur í nógu að snúast í dag í sundkeppninni á Ólympíuleikunum í London. Sarah náði frábærum árangri í 50 metra skriðsundinu í morgun þar sem hún deildi 16. sætinu með tveimur keppendum. Þær þurfa að synda úrslitasund um kl. 11 að íslenskum tíma um laust sæti í undanúrslitum. Áður en að því kemur þarf Sarah að synda með boðssundsveit Íslands í 4x100 metra fjórsundi.

Sarah Blake komst ekki í undanúrslit | Rangur tími skráður?

Sarah Blake Bateman komst ekki í 16 manna úrslit í 50 metra skriðsundi kvenna á Ólympíuleikunum í London. Sarah kom þriðja í mark þar sem að þrjár sundkonur kepptu um laust sæti í undanúrslitum. Þær voru allar jafnar á 22,28 sek eftir riðlakeppnina í 16.-18. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×