Sport

Sarah Blake: Ekki mitt besta en ég er ánægð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Sarah Blake Bateman var sátt við frammistöðu sína í undanrásum 50 m skriðsunds kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun.

Sarah kom í mark á 25,28 sekúndum sem dugði í 16.-18. sæti. Efstu sextán komast í undanúrslit og þarf því Sarah að keppa í svokölluðu swim-off klukkan 11.05 í dag.

Aðeins 20 mínútum áður syndir hún skriðsundssprettinn í 4x100 m fjórsundi með íslensku sveitinni.

Sarah á best 25,24 sekúndur og var því aðeins hársbreidd frá Íslandsmetinu sínu - sem hún bætir vonandi á eftir.

„Ég var ekki alveg upp á mitt besta en ég vann riðilinn minn og ég er ánægð með það. Ég vissi að ég var komin með forystu á síðustu fimmtán metrunum en það getur allt gerst í 50 m sundi."

„Þetta er ekki minn besti tími en ég er samt ánægð," sagði hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×