Innlent

Tvær átján ára með átta kíló af kókaíni

Úr myndbandi lögreglunnar og svo má sjá töskuna á innfelldu myndinni.
Úr myndbandi lögreglunnar og svo má sjá töskuna á innfelldu myndinni.
Tvær íslenskar konur, átján ára gamlar, voru í vikunni handteknar á Vaclav Havel flugvellinum í Prag, höfuðborg Tékklands.

Þær reyndust vera með um átta kíló af kókaíni í fórum sínum en efnin höfðu verið haganlega falin í töskum þeirra. Götuvirði efnanna í Tékklandi er sagt um sjötíu og sjö milljónir króna.

Í morgunblaðinu í dag er greint frá málinu og þar staðfestir starfsmaður íslenska utanríkisráðuneytisins að stúlkurnar hafi verIð handteknar. Í tékkneskum miðlum er haft eftir talsmanni tollsins á flugvellinum að þær hafi verið að koma frá Sao Paolo í Brasilíu með viðkomu í Munchen í Þýskalandi.

Hörð viðurlög eru við smygli af þessu tagi í Tékklandi og segja fjölmiðlar þar ytra að þær eigi yfir höfði sér tíu til átján ára langt fangelsi. Þá segir ennfremur að lögreglan sé að rannsaka hver loka áfangastaður efnanna hafi átt að vera.

Hér má sjá myndband þegar lögreglan rannsakar töskuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×