Sport

Ian Thorpe: Ég íhugaði sjálfsmorð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ian Thorpe.
Ian Thorpe. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ian Thorpe er einn sigursælasti sundmaður allra tíma en í nýrri ævisögu sinni skrifar hann um þunglyndi, alkóhólisma og sjálfsmorðshugsanir á meðan hann var á hátindi ferils síns.

Hinn 29 ára gamli Ian Thorpe er sigursælasti Ástrali á Ólympíuleikum með fimm gull og hann hefur einnig unnið 11 gull á heimsmeistaramótum þar af sex á HM í Fukuoka 2001. Hann var einnfremur valinn fjórum sinnum besti sundmaður heims.

Thorpe er að gefa út bókina "This is me: The Autobiography" eða "Þetta er ég - sjálfsævisaga" og ástralskir fjölmiðlar hafa komist í heitustu sögurnar í bókinni.

„Fjölskyldan mín veit ekki einu sinni um að ég hef mestan hluta lífs míns glímt við mikið þunglyndi. Þetta var orðið svo slæmt að ég var farinn að hugsa um staði og aðferðir ef ég ætlaði að taka mitt eigið líf," hefur Sunday Morning Herald eftir skrifum Thorpe í bókinni sinni.

Ian Thorpe vann þrjú gull á Ólympíuleikunum í Sydney og var hetja í heimalandinu. Hann þurft að leita í leyni til læknis sem reddaði honum þunglyndislyfjum en fljótlega fór hann að sækja meira í brennivínið.

„Ég notaði brennivínið til að hreinsa hugann af öllum þessum hryllilegum hugsunum. Þetta var ein leið til að stjórna hugsunum mínum og ég gerði þetta á bak við lokaðar dyr," sagði Thorpe sem tókst alltaf að fela drykkjuna fyrir þjálfurum og sálfræðingum.

„Þetta gerðist margoft á árunum 2002 til 2004 eða meðan ég var að undirbúa mig fyrir leikana í Aþenu 2004. Ég var alltaf einn að drekka í skömm," sagði Thorpe. Hann segir að sem betur fer áttaði hann sig alltaf á því hversu fáránlegt það væri að taka sitt eigið líf áður en hann gekk of langt.

Ian Thorpe bætti við tveimur gullum, einu silfri og einu bronsi á leikunum í Aþenu. Hann reyndi að koma aftur til baka í sumar eftir sex ára pásu en náði ekki að komast inn á Ólympíuleikana í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×