Sport

Helgi tók því rólega í hlaupinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/GVA
Helgi Sveinsson keppti í morgun í 100 m hlaupi í fötlunarflokki T42 á Ólympíumóti fatlaðra í London.

Hann kom í mark á 15,64 sekúndum sem er tæpri sekúndu frá besta árangri hans í greininni. Hann varð í fimmta sæti í sínum riðli og ellefta sæti alls af tólf keppendum.

Það var þó vitað fyrirfram að Helgi myndi taka því rólega í hlaupinu enda keppir hann einnig í spjótkasti karla nú fyrir hádegi. Sú keppni hefst um klukkan 10.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×