Sport

Helgi endaði í fimmta sæti | Setti nýtt Íslandsmet

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Sveinsson varð í fimmta sæti í spjótkasti karla í flokki F42 á Ólympíumóti fatlaðra nú í morgun en hann setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í greininni.

Helgi kastaði lengst 47,61 m og bætti Íslandsmet sitt um rúmen metra. Það kast kom í annarri tilraun og dugði honum í fjórða sætið eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Að þeim loknum komust átta efstu áfram í úrslit og köstuðu þeir þrívegis í viðbót.

Helgi náði ekki að bæta sig í úrslitunum en lengst kastaði hann 46,67 m í fjórðu tilraun. Hann féll niður í fimmta sætið en niðurstaðan engu að síður glæsileg hjá kappanum.

Kínverjinn Yanlong Fu varð Ólympíumeistari á nýju heimsmeti. Hann kastaði 52,79 m í lokatilraun sinni en hann hafði verið í fjórða sæti fram að því.

Kamran Shokrisalari frá Íran varð annar á 52,06 m og Runar Steinstad frá Noregi fjórði á 48,90 m. Næstur kom Casper Schutte frá Suður-Afríku á 48,12 m.

Allir íslensku keppendurnir hafa nú lokið þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×