Hljóp á tímanum 57,57 á 57 ára afmælisdaginn sinn 21. ágúst 2012 19:00 Sigurbjörg hleypur að meðaltali milli tuttugu og tuttugu og fimm kílómetra á viku yfir sumartímann og hefur oft með sér labradorhunda sem halda henni við efnið. "
Það er kannski spurning um að fá talnasérfræðing til að rýna í þessar tölur. Ég er viss um að við hefðum bæði gaman af því," segir doktor Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor í stjórnsýslufræðum við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og hlaupari. Sigurbjörg fagnaði 57 ára afmæli sínu á laugardaginn og bætti um betur með því að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu á hinum skemmtilega viðeigandi tíma 57,57 mínútum. Aðspurð segir Sigurbjörg að sekúndubrotin hafi ekki verið 57 eins og mínúturnar og sekúndurnar, en það skemmi þó ekki ánægjuna og undrunina með þennan skemmtilega tíma. "Þetta er alveg ótrúlegt. Ég segi í gríni að það verið útpælt að koma í mark á þessum tíma vegna afmælisins og gef þannig í skyn að ég hefði getað hlaupið þetta hraðar," segir hún og hlær. "Sannleikurinn er sá að þetta var hreinasta tilviljun og ég varð mjög hissa þegar ég sá tímann. Eftir hlaupið naut ég afmælisdagsins og menningarnætur í hverfinu mínu, Goðahverfinu, þar sem alls konar fólk kom í heimsókn. Ég var dálítið hátt uppi af endorfíni og sagði öllum sem heyra vildu frá þessari skemmtilegu tilviljun." Sigurbjörg hefur hlaupið síðan 2001, þegar hún fór sitt fyrsta maraþon í London. "Þá hljóp ég maraþonið á fjórum klukkustundum og fjórtán mínútum. Á sama tíma sló Paula Radcliffe heimsmetið þegar hún hljóp á tveimur klukkutímum og fjórtán mínútum, einungis tveimur klukkutímum skemur en ég. Svo hljóp ég Reykjavíkurmaraþon árið 2004 og bætti tímann minn um níu mínútur, en síðan þá hef ég hlaupið hálfmaraþon bæði hér heima og erlendis," segir Sigurbjörg og bætir við að yfir sumartímann hlaupi hún að meðaltali um tuttugu til tuttugu og fimm kílómetra á viku. "Ég fer út að hlaupa tvisvar til þrisvar í viku og fer varla út fyrir mikið minna en átta kílómetra. Mjög oft hleyp ég fimmtán kílómetra og hleyp mikið fyrir ofan Reykjavík, oft heiman frá mér upp í Selás og stundum í kringum Rauðavatn og þar um kring. Mér finnst gott að hlaupa ein, pæli mikið og hugsa í lausnum á leiðinni, en ég fæ líka lánaða labradorhunda hjá systkinum og vinum. Það er fínt að hafa hundana til að halda mér við efnið." Aðspurð segir Sigurbjörg stefnuna setta á tímann 58,58 í sama hlaupi að ári. "Ég verð að fara að æfa mig strax undir það. Þetta er úthugsað sport, ekki síður en líkamlegt."kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Fleiri fréttir Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Sjá meira