Sport

Íslenska sveitin glæsileg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Ólympíumót fatlaðra var sett með glæsibrag á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld. Helgi Sveinsson, frjálsíþróttamaður, var fánaberi Íslands á hátíðinni.

Fulltrúar Íslands í ár eru auk Helga sundfólkið Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir, sem og frjálsíþróttakonan Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir.

Keppni hefst á morgun en Íslendingarnir fjórir keppa allir í sínum fyrstu greinum á föstudaginn.

Hér á meðfylgjandi myndum má sjá íslensku keppnissveitina á Ólympíuleikvanginum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×