Sport

Bolt: Er nú orðinn goðsögn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bolt eftir hlaupið í gær.
Bolt eftir hlaupið í gær. Mynd/Valli
Usain Bolt segir að með sigrinum í 200 m hlaupi karla á Ólympíuleikunum í gær er hann kominn í hóp bestu íþróttamanna sögunnar.

„Ég er nú goðsögn í lifanda lífi," sagði Bolt við blaðamenn á Ólympíuleikvanginum í gær. „Nú ætla ég að halla mér aftur, slaka á og íhuga mitt næsta skref."

Bolt varð í gær fyrsti íþróttamaðurinn til að verja Ólympíutitil sinn í bæði 100 og 200 m hlaupi karla. Hann hlaup á 19,32 sekúndum í gær en heimsmet hans í greininni er 19,19 sek.

„Ég var fljótur en ekki í nægilega góðu formi. Ég er þó ekki reiðubúinn að hætta. Ég elska þessa íþrótt."

„Ég veit þó ekki hvað ég vil gera eftir þetta, hvort ég vilji hlaupa 100 m eða 200 m - eða þá reyna eitthvað annað. Ég þarf að setja mér markmið sem muni hvetja mig til afreka."

„En ég ætla að njóta lífsins til loka þessa tímabils því mér tókst ætlunarverk mitt hér."

Bolt hægði aðeins á sér á lokametrunum og segir að það hafi átt sínar ástæður. „Eftir beygjuna fann ég aðeins fyrir bakinu. En ég hætti vegna þess að ég vissi að þetta yrði ekki heimsmet."

„Ég vildi ná heimsmetinu í 200 m hlaupinu en ég er ánægður. Ég kom hingað og gaf allt mitt í þetta. Ég er stoltur af sjálfum mér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×