Sport

Eaton vann tugþrautina með yfirburðum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Asthon Eaton frá Bandaríkjunum bar öruggan sigur úr býtum í tugþraut karla sem lauk í gærkvöldi á Ólympíuleikunum í London.

Eaton fékk samtals 8869 stig og var 198 stigum á undan landa sínum, Trey Hardee. Leonel Suarez frá Kúbu varð þriðji með 8523 stig en það er hans besti árangur á tímabilinu.

Eaton hafði forystu frá fyrstu grein en í fyrstu greininni hljóp hann 100 m hlaupið á 10,35 sekúndu sem er mettími í þraut á Ólympíuleikum.

Hann var aðeins 24 stigum frá Ólympíumeti Roman Sebrle en Eaton bætti heimsmetið í greininni í úrtökumótu Bandaríkjanna í júní síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×