Sport

Frakkar drukku fyrir tvær og hálfa milljón króna

Parker lét Diaw félaga sinn greiða reikninginn háa.
Parker lét Diaw félaga sinn greiða reikninginn háa.
Þó svo Tony Parker hafi fengið glerbrot í augað síðast er hann djammaði var hann samt óhræddur við að kíkja út á lífið í London eftir að franska körfuknattleikslandsliðið lauk keppni á ÓL.

Frakkar enduðu í sjötta sæti á leikunum en þeir voru slegnir út af Spánverjum.

Parker fór með félögum sínum í landsliðinu út á galeiðuna þar sem var tekið hraustlega á því. Svo mikið reyndar að liðið drakk fyrir 2,4 milljónir króna á bar í London.

Boris Diaw, sem er nýbúinn að semja við San Antonio Spurs, greiddi reikninginn og bætti við rúmlega 200 þúsund krónum í þjórfé.

Hann ætti að hafa efni á því enda fær hann 9 milljónir dollara fyrir tvö ár hjá Spurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×