Sport

Bradley Wiggins vann sögulegt gull

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bradley Wiggins fagnar hér gullinu sínu.
Bradley Wiggins fagnar hér gullinu sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Breski hjólreiðakappinn, Bradley Wiggins, nýkrýndur meistari í Frakklandshjólreiðunum, (Tour de France) vann í dag sögulegt gull á Ólympíuleikunum í London. Wiggins varð þá fyrsti maðurinn í sögunni sem vinnur Ólympíugull á sama ári og hann vinnur Frakklandshjólreiðarnar.

Bradley Wiggins varð Ólympíumeistari í götuhjólreiðum þar sem hjólreiðakapparnir keppa við klukkuna. Keppendur eru ræstir út á 90 sekúndna fresti og sá vinnur sem klárar þessa 44 kílómetra braut á bestum tíma.

Wiggins kom í mark á 50:39.54 mínútum en í öðru sæti var Þjóðverjinn Tony Martin á 51:21.54 mínútum. Bretar fengu einnig brons því Chris Froome kom þriðji í mark.

Þetta er fjórða Ólympíugull Wiggins á ferlinum því hann vann tvö gull í Peking 2008 og eitt gull í Aþenu 2004.

Þetta er búinn að vera góður dagur fyrir Breta því fyrr í dag unnu Heather Stanning og Helen Glover fyrsta gull Breta á leikunum í Parakeppni kvenna í róðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×