Sarah ætlaði að hætta: Get ekki hætt á þessum nótum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 3. ágúst 2012 11:55 Mynd/Valli
Sarah Blake Bateman fékk aðeins átta mínútur til að gera sig klára fyrir aukasund í 50 m skriðsundi í dag og mátti hún sætta sig við að komast ekki áfram í 16-manna úrslit. Hún hafði aldrei tapað aukasundi á ferlinum fyrr en í dag. Sarah Blake kom í mark í 16.-18. sæti í undanrásunum í morgun og synti þá á 25,28 sekúndum sem er aðeins 0,04 sekúndum frá Íslandsmeti hennar. Amy Smith frá Bretlandi vann aukasundið á 24,82 sekúndum en skráður tími á Söruh var 26,03 sekúndur. Hún segist þó telja að sá tími sé rangur. „Ég veit að ég vann ekki riðilinn en ég fór ekki svona hægt heldur," sagði hún. Á sjónvarpsupptöku má sjá að hún kom í mark á mjög svipuðum tíma og hin bandaríska Kara Lynn Joyce en tíminn hennar var 25,16 sekúndur. „Klukkan var ekki stöðvuð á réttu augnabliki," bætti hún við. „Ég er samt ánægð, sérstaklega þar sem að þetta var aðeins átta mínútum á eftir boðsundið. Ég var því svolítið þreytt en það hefði ekki átt að breyta neinu," sagði hún. „Það er þó gaman að hafa fengið að synda aftur, þó svo að það hafi verið í aukasundi." Hún neitar því þó ekki að það hafi haft áhrif. „Kannski hafði það meiri áhrif á hugarfarið en líkamann. Ég vil þó alls ekki skella skuldinni á boðsundið." Hún segir að best hefði verið að synda í aukasundinu fyrir boðsundið. „Það er auðveldara að koma úr 50 m sundi í 100 m sund en öfugt. En það hefði aldrei komið til greina að draga mig úr boðsundssveitinni. Við lögðum mikið á okkur til að komast hingað og ef ég hefði þurft að velja á milli hefði ég valið boðsundið." Sarah hefur ávallt náð sínu besta fram í aukasundi, sem nefnist swim-off á ensku. „Alltaf. Ég hef aldrei tapað aukasundi áður. En svona er þetta bara." „Þetta er samt minn besti árangur á Ólympíuleikum og mér gekk mun betur hér en í Peking árið 2008." Hún segist hafa ætlað að hætta keppni í sundi eftir þessa leika en að það hafi nú breyst. „Það gengur ekki að ljúka sundferlinum með því að tapa aukasundi," sagði hún og brosti. „Ég verð því líklega eitthvað áfram í þessu."
Tengdar fréttir Sarah þarf að keppa um laust sæti í undanúrslitum Sarah Blake Bateman kom fyrst mark í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London í morgun. Sarah, sem er 22 ára og syndir fyri Sundfélagið Ægi, kom í mark á 25,28 sek., en Íslandsmet hennar er 25,24 sem hún setti í Ungverjalandi á þessu ári. 3. ágúst 2012 09:19 Sarah fer beint úr boðsundinu í bráðabana Sarah Blake Bateman hefur í nógu að snúast í dag í sundkeppninni á Ólympíuleikunum í London. Sarah náði frábærum árangri í 50 metra skriðsundinu í morgun þar sem hún deildi 16. sætinu með tveimur keppendum. Þær þurfa að synda úrslitasund um kl. 11 að íslenskum tíma um laust sæti í undanúrslitum. Áður en að því kemur þarf Sarah að synda með boðssundsveit Íslands í 4x100 metra fjórsundi. 3. ágúst 2012 10:03 Sarah Blake: Ekki mitt besta en ég er ánægð Sarah Blake Bateman var sátt við frammistöðu sína í undanrásum 50 m skriðsunds kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. 3. ágúst 2012 10:35 Sarah Blake komst ekki í undanúrslit | Rangur tími skráður? Sarah Blake Bateman komst ekki í 16 manna úrslit í 50 metra skriðsundi kvenna á Ólympíuleikunum í London. Sarah kom þriðja í mark þar sem að þrjár sundkonur kepptu um laust sæti í undanúrslitum. Þær voru allar jafnar á 22,28 sek eftir riðlakeppnina í 16.-18. sæti. 3. ágúst 2012 11:18 Mest lesið Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Sport Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Enski boltinn ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Eva Margrét sjöunda á EM Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården Fotios spilar 42 ára með Fjölni „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ „Við erum bara búin að fara í eina átt og það er upp“ „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Einar tekur við Víkingum Pogba og Fati mættir til Mónakó Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Mikael orðinn leikmaður Djurgården Alexander Máni seldur til Midtjylland Sjá meira
Sarah þarf að keppa um laust sæti í undanúrslitum Sarah Blake Bateman kom fyrst mark í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London í morgun. Sarah, sem er 22 ára og syndir fyri Sundfélagið Ægi, kom í mark á 25,28 sek., en Íslandsmet hennar er 25,24 sem hún setti í Ungverjalandi á þessu ári. 3. ágúst 2012 09:19
Sarah fer beint úr boðsundinu í bráðabana Sarah Blake Bateman hefur í nógu að snúast í dag í sundkeppninni á Ólympíuleikunum í London. Sarah náði frábærum árangri í 50 metra skriðsundinu í morgun þar sem hún deildi 16. sætinu með tveimur keppendum. Þær þurfa að synda úrslitasund um kl. 11 að íslenskum tíma um laust sæti í undanúrslitum. Áður en að því kemur þarf Sarah að synda með boðssundsveit Íslands í 4x100 metra fjórsundi. 3. ágúst 2012 10:03
Sarah Blake: Ekki mitt besta en ég er ánægð Sarah Blake Bateman var sátt við frammistöðu sína í undanrásum 50 m skriðsunds kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. 3. ágúst 2012 10:35
Sarah Blake komst ekki í undanúrslit | Rangur tími skráður? Sarah Blake Bateman komst ekki í 16 manna úrslit í 50 metra skriðsundi kvenna á Ólympíuleikunum í London. Sarah kom þriðja í mark þar sem að þrjár sundkonur kepptu um laust sæti í undanúrslitum. Þær voru allar jafnar á 22,28 sek eftir riðlakeppnina í 16.-18. sæti. 3. ágúst 2012 11:18