Sport

Phelps vann gull í sínu síðasta sundi á Ólympíuleikum

Phelps hefur átt stórkostlegan feril í sundinu.
Phelps hefur átt stórkostlegan feril í sundinu.
Bandaríkjamaðurinn, Michael Phelps, vann í kvöld sín 18. gullverðlaun á Ólympíuleikum þegar bandaríska sveitin vann gullverðlaun í 4x 100 metra boðsundi.

Phelps gaf það út fyrir Ólympíuleikanna að þeir yrðu hans síðustu en hann er sigursælasti sundmaðurinn í sögu Ólympíuleikanna með tuttugu og tvo verðlaunapeninga og þar af átján gullpeninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×