Sport

Ásgeir: Ég er rétt að byrja | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Skotstelling Ásgeirs. Henni þurfti hann að halda lengi í morgun, þó aldrei meira en í 10-15 sekúndur í senn.
Skotstelling Ásgeirs. Henni þurfti hann að halda lengi í morgun, þó aldrei meira en í 10-15 sekúndur í senn. Mynd/Valli
Ásgeir Sigurgeirsson hefur nú lokið keppni á sínum fyrstu Ólympíuleikum en þessi 26 ára gamli skotfimikappi lenti í dag í 32. sæti í keppni með skammbyssu af 50 m færi.

Ásgeir hafði náð þeim frábæra árangri að hafna í fjórtánda sæti í keppni með loftskammbyssu af tíu metra færi um síðustu helgi og var þá aðeins þremur stigum frá sæti í lokaúrslitum.

Loftskammbyssan er sterkari grein Ásgeirs en hann hefur minni reynslu af því að bæði æfa og keppa í frjálsri skammbyssu, eins og keppnin í morgun er nefnd í daglegu tali.

Ásgeir fékk 544 stig af 600 mögulegum en 559 stig þurfti til að komast inn í úrslit. Íslandsmet Ásgeirs er 565 stig en það er sett við aðstæður sem hann kann best við.

„Ég er pínu svekktur," sagði hann við Vísi eftir keppni morgunsins. „En ég þarf þó að melta þetta aðeins betur. Ég var yfir Ólympíulágmarkinu sem er þó eitthvað en ég hefði viljað vera aðeins hærri og helst fara yfir 550 stig."

„Það stefndi allt í það en svo klikkaði ég í síðustu seríunni. Maður lærir samt af þessu enda er ég kominn hingað út til að safna reynslu og hana fékk ég svo sannarlega."

Hér er Ásgeir búinn að ná tíu.
Getur ekki æft úti á Íslandi

Ólíkt hinni greininni sem Ásgeir keppti í er keppt í frjálsri skammbyssu utandyra. Vindur og sér í lagi birta hefur mikil áhrif á frammistöðu og því er Ásgeir óvanur þar sem hann hefur ekki aðstöðu til að æfa þessa grein utanhúss á Íslandi.

„Mestu munurinn felst í því að ég æfi þessa grein inni, þar sem birtuskilyrðin eru alltaf eins. Hér var alltaf að draga fyrir sólu sem ég þurfti oft að breyta fókusnum í keppninni. Það er eitthvað sem ég er ekki nógu góður í og þarf að æfa betur."

„Það eru ekki nógu góðar aðstæður fyrir Ólympíugreinar í skotfiminni heima en vonandi verður hægt að bæta úr því," sagði hann.

Hvíldarstellingin.
Stressaður í fyrstu seríunni

Keppendur fá 60 skot og skjóta tíu sinnum á hverja skífu. Mest er hægt að fá tíu stig fyrir skot en þá þurfa þeir að hitta miðjuhringinn á skífunni sem er ekki nema fimm sentímetrar í þvermál. Það er ekki einfalt af 50 metra færi.

Ásgeir fékk 89 stig fyrir fyrstu skotseríu sína en náði að rétta sig af eftir það. Hann fékk 92 stig fyrir næstu þrjár seríur, svo 93 stig en datt svo niður í 86 stig í síðustu seríunni.

„Í fyrstu var nokkuð stress í mér og ég var enn að læra á birtuna. Svo náði ég að halda mér stöðugum í þokkalegu skori en í lokin var ég að renna út á tíma, sem ég gerði mér ekki grein fyrir fyrr en of seint. Ég var líka orðinn þreyttur eftir að hafa haldið einbeitingu í langan tíma."

Ásgeir var aldrei undir sjö stigum í morgun en átti þó þrjú slík skot í keppninni í dag. Honum gekk misvel að afgreiða burt neikvæðar hugsanir eftir slík skot en reyndi af fremsta megni af halda jákvæðum hugsunum á lofti.

„Ég reyndi að hugsa um það sem ég var að gera og inn á milli komu kaflar sem gengu ágætlega," sagði hann.

Það var stutt á milli keppenda.
Heimsklassaskotmenn fyrir neðan mig

Ásgeir er mjög ungur í skotfimiíþróttinni og langan feril fram undan, kjósi hann að halda áfram. Hann stefnir í það minnsta á að gera það af fullum krafti.

„Ég er langt frá því að hætta. Ég veit að ég get þetta enda voru skotmenn sem eru í heimsklassa fyrir neðan mig á þessu móti. Það eru atvinnumenn í greininni. Ég er hins vegar með talsvert minni reynslu og æfi minna en þeir," sagði hann.

„Ég held því ótrauður áfram og stefni á að fara á Ólympíuleikana 2016 og 2020."

Ásgeir nýtur góðs stuðnings sem gerir honum kleift að geta haldið áfram að æfa og keppa.

„Ég er að vinna hjá fyrirtæki sem heitir Símafélagið og það styrkir mig mjög vel. Ég vinn frá níu til þrjú og get því æft nánast eins mikið og ég þarf."

„Ég fæ líka að halda fullum launum á meðan ég er hér úti og það hjálpar mikið til. Þetta gerir mér kleift að stunda greinina eins og ég vil."

Ásgeir hefur einnig verið í samstarfi við finnska skotfimilandsliðið og þá er þjálfari hans, Ragnar Skanåker frá Svíþjóð, er fyrrum Ólympíumeistari í fjálsri skammbyssu en alls vann hann sex Ólympíuverðlaun í greininni á löngum ferli sínum.

„Ég er því kominn með gott fólk í kringum mig sem veit hvað það er að gera. Ég mun því halda áfram að fara á heimsbikarmót og fá meiri reynslu. Ég hlakka til að takast á við framtíðina."

Foreldrar Ásgeirs fylgdust spenntir með. Hér er faðir hans.
Árangur Ásgeirs í morgun

Keppnin sjálf stóð yfir í tvo klukkutíma og hafði hver keppandi sína braut. Keppendum var frjálst að fá sér sæti og hvílast á milli skota en Ásgeir stóð allan tímann í sömu sporunum - með vinstri höndina í buxnavasanum og þá hægri á byssunni.

Einu hreyfingarnar var þegar hann reis upp hægri handlegginn til að stilla miðið - sem og auðvitað þegar hann tók í sjálfan gikkinn. Byssan er 1400 grömm og geta falist mikil átök í því að halda henni stöðugri yfir svo langan tíma.

Ásgeir byrjaði að taka tólf æfingaskot, það fyrsta eina mínútu yfir níu. Fyrsta keppnisskotið var tekið klukkan 9:16 og það síðasta kl. 10:53.

Hér fyrir má sjá skotseríur Ásgeirs í tölum:

1. sería: 89 stig (18 mínútur, þrjár tíur, lægst sjö).

2. sería: 92 stig (14 mínútur, þrjár tíur, lægst átta).

3. sería: 92 stig (14 mínútur, fjórar tíur, lægst sjö).

4. sería: 92 stig (16 mínútur, þrjár tíur, lægst átta).

5. sería: 93 stig (14 mínútur, þrjár tíur, lægst átta).

6. sería: 86 stig (15 mínútur, ein tía, lægst sjö).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×