Innlent

Lýst eftir Richard

Lögreglan á Húsavík lýsir eftir Richard Oddi Haukssyni. Richard er 35 ára, með skollitað hár, grannur og um 184 cm á hæð. Hann var íklæddur grá/bláum gallabuxum, svartri hettupeysu og svörtum Cintamani vindjakka. Í gráum og hvítum Nike strigaskóm og með ljós grá/bláa prjónahúfu. Þá var Richard með sólgleraugu og lítinn bakpoka. Til hans sást síðast í Reykjahlíð í Mývatnssveit um kvöldmatarleytið á föstudag.

Richard var ekki með bifreið til umráða.

Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Richards eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Húsavík í síma 444-2850




Fleiri fréttir

Sjá meira


×