Sport

Spænska tennissambandið kærir franska sjónvarpsstöð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Spænska tennissambandið hyggst leita réttar síns vegna ásakana í frönskum sjónvarpsþætti að Rafael Nadal og aðrar spænskar íþróttastjörnur noti ólögleg lyf til að ná árangri í sínum íþróttum.

Málið snýst um stutt innslag í þættinum Les Guignols (brúðurnar) sem sýnir Nadal fylla bensíntankinn á bíl sínum með eigin þvagi og bruna svo af stað á ógnarmiklum hraða.

„Spænskir íþróttamenn. Árangur þeirra er engin tilviljun," segir svo í myndbandinu með merkjum hinna ýmsu spænskra íþróttasambanda.

Myndbandið má sjá hér fyrir ofan en Spánverjar eru vitanlega afar ósáttir við það og ætla að kæra sjónvarpsstöðina, bæði fyrir ásakanirnar og ólöglega notkun á merkjum íþróttasambandanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×