Voru skíthræddir um að bardaginn yrði blásinn af 5. október 2012 00:00 Sauma þurfti fjögur spor í hökuna á Gunnari eftir að bardaganum lauk. "
Ég var að drepast úr stressi yfir að ég væri búinn að eyðileggja allt fyrir Gunna," segir Jón Viðar Arnþórsson, formaður bardagaklúbbsins Mjölnis. "Þetta er samt svo fyndið því hann hefur aldrei áður fengið skurð í andlitið." Eins og alþjóð veit fór Gunnar Nelson létt með andstæðing sinn þegar hann þreytti frumraun sína í blönduðum bardagalistum innan UFC-sambandsins á laugardaginn var. Glöggir áhorfendur tóku eftir því að það blæddi úr skurði á höku Gunnars eftir bardagann, án þess þó að andstæðingurinn, DaMarques Johnson, hefði komið einu einasta höggi á hann. Skurðinn fékk Gunnar þegar hann tók létta æfingu með Jóni Viðari á miðvikudeginum fyrir bardagann. Samkvæmt reglum UFC mega keppendur ekki vera með skurð í andliti þegar í bardagann er komið. "Við vorum að kickboxa létt á miðvikudeginum fyrir bardagann eins og við gerum oft. Við höfum æft saman í tíu ár og aldrei slasað hvor annan. Svo gerðist þetta. Ég sparkaði í hann, fyrir stærstu stund lífs okkar þegar við vorum að passa okkur sérstaklega mikið," segir Jón Viðar, en hann kynnti íþróttina fyrir Gunnari fyrir nokkrum árum. Félagarnir voru að vonum stressaðir um að bardaginn yrði blásinn af en að auki voru um hundrað og fimmtíu Íslendingar á leiðinni til Nottingham til að sjá bardagann. "Við klemmdum strax fyrir og Gunni er með svo þykkt blóð að það hætti að blæða mjög fljótlega. Okkur var ráðlagt að fara ekki til læknis, því hann mátti ekki keppa með sauma. Daginn eftir skoðaði UFC-læknirinn hann og gaf honum grænt ljós," segir Jón Viðar. "Hann leit alveg þokkalega út daginn eftir en við vorum samt alveg skíthræddir." Þegar Gunnar var við upphitun nokkrum mínútum fyrir bardagann opnaðist skurðurinn svo aftur. "Gunni og John Kavanagh, yfirþjálfari Mjölnis, voru að glíma á bak við og með smá nuddi opnaðist skurðurinn. Hann gekk inn í búrið skömmu síðar og þegar bardaginn hófst byrjaði að blæða. Við vorum bara heppnir að þetta var á góðum stað eða undir hökunni. Ef þetta hefði verið í kringum augun hefðu dómararnir aldrei leyft honum að slást. Það hjálpaði líka að hann er með skegg svo þetta sást illa," segir Jón Viðar, en sauma þurfti fjögur spor í höku Gunnars eftir sparkið óheppilega. hallfridur@frettabladid.is
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Sjá meira