Fimmtíu ára afmæli Bond 5. október 2012 10:10 Andress í myndinni Dr. No sem kom út fyrir fimmtíu árum.
Slétt fimmtíu ár eru liðin síðan James Bond sást fyrst á hvíta tjaldinu í myndinni Dr. No. Myndin fékk misjafna dóma en gekk mjög vel í miðasölunni. Með hlutverk njósnara hennar hátignar fór ungur leikari, Sean Connery, sem átti heldur betur eftir að setja mark sitt á kvikmyndaseríuna. Dr. No var byggð á samnefndri skáldsögu Ians Fleming frá árinu 1958, sem var sú sjötta sem hann skrifaði um 007. Í henni er Bond sendur til Jamaíka til að rannsaka dauða annars bresks njósnara. Hann kemst að því að Dr. Julius No ætlar að eyðileggja mannaða geimferð Bandaríkjanna með geislavopni sínu. Myndin kostaði lítið í framleiðslu en náði miklum vinsældum. Gagnrýnendur gáfu henni misjafna dóma en í gegnum árin hefur hróður hennar aukist og núna er hún af mörgum talin meðal þeirra betri í seríunni. Margir muna eftir frægu atriði úr Dr. No þegar Bond-stúlkan Ursula Andress gekk upp úr sjónum. Margt annað úr myndinni átti eftir að festa sig í sessi í næstu Bond-myndum, þar á meðal hin fræga kynning: Bond, James Bond. Mikil hátíðarhöld voru í Bretlandi í september til að fagna þessu fimmtíu ára Bond-afmæli. Roger Moore og fleiri stjörnur úr myndunum komu fram á frægum tökustöðum þeirra. Fyrrverandi Bond-stúlkurnar Eunice Gayson, Britt Ekland og Shirley Eaton voru á meðal stjarnanna, auk illmennisins og stálkjaftsins Richard Kiel. Þau heimsóttu skoska kastalann Eilean Donan, Penbryn-ströndina í Wales og Stoke-garðinn á Englandi. Nýjasta myndin um James Bond, Skyfall, kemur í bíó 26. október. Sem fyrr fer Daniel Craig með hlutverk njósnara hennar hátignar.
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Hvað veistu um… London? Lífið Fleiri fréttir Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Sjá meira