Sport

Jón Margeir: Ef ég hef trú á því þá get ég það

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Margeir Sverrisson sést hér með gullpeninginn veglega sem hann vann á Ólympíumóti fatlaðra í London.
Jón Margeir Sverrisson sést hér með gullpeninginn veglega sem hann vann á Ólympíumóti fatlaðra í London. Mynd/Stefán
Það var vel tekið á móti íslenska Ólympíuhópnum þegar hann kom til Íslands í gær eftir frábæra frammistöðu á Ólympíumóti fatlaðra. Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, Helgi Sveinsson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir settu öll Íslandsmet en fremstur fór Jón Margeir Sverrisson sem vann gull í 200 metra skriðsundi.

Jón Margeir hafði í nógu að snúast enda vildu allir óska honum til hamingju og fá af honum mynd.

„Þetta er búin að vera frábær vika. Ég gleymi aldrei deginum sem ég vann gullið og ætla að passa upp á minninguna," sagði Jón Margeir, sem náði persónulegu meti í öllum þremur greinunum sem hann tók þátt í. En hvað með allar myndatökurnar?

„Þetta er stundum þreytandi en maður verður bara að venjast því. Það skiptir mig engu máli í hversu margar myndatökur ég þarf að fara í bara ef ég kemst lifandi heim," sagði Jón Margeir með sínum einstaka húmor og sýn á lífið. Hann passar upp á gullpeninginn sem er engin smásmíði. „Ég er varla búinn að sleppa honum og ég mun alltaf passa upp á hann," sagði Jón Margeir. Hann hefur metnaðarfull markmið fyrir ÓL í Ríó 2016.

„Ég er búinn að ákveða það að ná lágmörkunum fyrir ófatlaða í 1500 metra skriðsundi í Ríó og að fara á tvenna leika, fyrst á leikana hjá ófötluðum og svo á Ólympíumót fatlaðra," sagði Jón Margeir. En er þetta raunhæft markmið? „Ef ég hef trú á því þá get ég það," sagði Jón Margeir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×