Minni skellur en búist var við 13. júlí 2011 06:00 Hótelhaldarar beggja vegna Múlakvíslar taka við strandaglópum og haga afgreiðslutímanum eftir tiktúrum náttúrunnar. Fréttablaðið/Stefán „
Flumbrugangurinn fyrstu dagana eftir flóðið hefur kostað okkur gríðarlega mikið," segir Jón Grétar Ingvason. Hann rekur gistiheimilið Klausturhof og Kaffi Munka á Kirkjubæjarklaustri. Þar hafa á bilinu sextíu til hundrað manns afpantað gistipláss eftir að hlaup í Múlakvísl tók þjóðveginn í sundur á laugardag. Flestir þeir sem drógu bókanir til baka voru í hópum sem ferðast hafa um landið í rútum sem hvorki komust með selflutningunum yfir Múlakvísl né réðu við slæma vegi á Fjallabaksleið. Hljóðið er betra á stærri hótelum og gistiheimilum beggja vegna Múlakvíslar. Starfsfólk þar segir aðstæður breytast fljótt og það verði að vinna eftir tiktúrum náttúrunnar. Á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri voru öll herbergi bókuð í gær. Þar hafa viðgengist gestaskipti, það er að ferðalangar sem ætluðu að gista í Vík í Mýrdal, en komust ekki yfir Múlakvísl eftir að hætt var að selflytja fólk yfir hana í gær, höfðu næturdvöl á Kirkjubæjarklaustri. Þeir sem ætluðu austur yfir en komust hvergi gistu í Vík. „Hóparnir skila sér betur en aðrir. Þeir skila sér síðar í hús enda tekur ferðin yfir Fjallabak sex klukkutíma í stað eins yfir Múlakvíslina," segir Steinþór Vigfússon, hótelstjóri á Hótel Dyrhólaey. Afgreiðslutíma á hótelinu hefur verið breytt í takt við aðstæður, morgunverður er klukkan sex á morgnana í stað sjö og kvöldverður reiddur fram allt fram undir miðnætti. „Í gær [fyrrakvöld] kom hingað hópur Spánverja. Þeir voru sáttir enda vanir því að borða seint á kvöldin," segir Steinþór. - jab
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira