Auðvelt að leysa út lyf annarra salome@365.is skrifar 13. júlí 2011 14:00
Það virðist vera tiltölulega auðvelt fyrir óprúttna aðila að komast yfir lyfseðilsskyld lyf, ef marka má sögu Þóreyjar Hilmarsdóttur, sem fékk ekki útleystan lyfseðil sinn fyrr í dag þar sem hann hafði þegar verið útleystur nokkrum dögum áður. "Þegar ég spurði hvernig þetta væri hægt þá fékk ég þau svör að hver sem er, ef hann hefur kennitöluna þína, getur komið í apótekið og náð í lyfin sem þú átt." segir Þórey. Hún segist furðulostin, sérstaklega í ljósi allrar þeirrar umræðu sem fram hefur farið undanfarið um misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum. "Ef þú fréttir um einhvern sem er á Rítalíni geturðu farið í heimabankann, fengið kennitölu viðkomandi og farið svo í næsta apótek og tékkað hvort það sé á lyfjagáttinni." Lyfjagáttin er rafrænt lyfseðlakerfi sem gerir það að verkum að sjúklingur þarf ekki að hafa lyfseðil meðferðis, þar sem þeir eru geymdir í tölvukerfum apótekanna. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að samkvæmt reglugerð þurfi að framvísa skilríkjum þegar eftirritunarskyld lyf eru sótt. Séu lyf útleyst fyrir hönd annarra þurfi viðkomandi einnig að framvísa skilríkjum og það sé skráð í kerfið hver sótti lyfin. Lyfjafræðingur hjá bílaapótekinu sagði hinsvegar að framkvæmdin væri sú að hægt væri að leysa út lyf fyrir hönd annarrar manneskju að því gefnu að viðkomandi gæti gefið upp kennitölu þess sem skráður væri á lyfseðilinn, auk þess sem viðkomandi þyrfti að vita hvaða lyf hann væri að sækja. Hann sagði það til að mynda algengt að hjón sæktu lyf hvors annars, en í tilfell Þóreyjar var það fyrrverandi eiginmaður hennar sem leysti út lyfin og eru þau enn skráð á sama heimilisfang að sögn apóteksins. Rannveig Gunnarsdóttir sagði að eftirlitssvið Lyfjastofnunar væri með málið til skoðunar.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira