Lífið

Höddi Magg fékk sjokk í Svíþjóð

Hörður og Björn sjást hér í lýsingunni á Frakkaleiknum í fyrrakvöld. Fréttablaðið/Valli
Hörður og Björn sjást hér í lýsingunni á Frakkaleiknum í fyrrakvöld. Fréttablaðið/Valli
„Þetta er nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, ég hef hvorki farið sem fréttamaður né áhorfandi á stórmót þannig að þetta hefur verið mikið ævintýri. En um leið höfum við, ég og Björn Sigurðsson aðstoðarmaður minn, líka verið á þönum allan tímann þannig að þetta hefur verið ákaflega lýjandi um leið," segir Hörður Magnússon íþróttafréttamaður.

Hörður hefur lýst öllum leikjum íslenska landsliðsins á HM í handbolta sem fer nú fram í Svíþjóð. Og þar hafa svo sannarlega skipst á skin og skúrir. Landsliðið fór á kostum í fyrstu fimm leikjunum sínum, vann þá alla með nokkrum glæsibrag og Hörður neitar því ekki að hann hafi farið á ákveðið flug sjálfur í kollinum.

„Maður var auðvitað farinn að leiða hugann að því að maður gæti verið að upplifa eitthvað einstakt, gæti jafnvel lýst úrslitaleik Íslands á HM."

En svo kom leikurinn gegn Þjóðverjum sem reyndist vera hálfgert rothögg fyrir „strákana okkar".

„Ég get alveg viðurkennt að eftir Þjóðverjaleikinn leit ég út um gluggann á hótelherberginu og fann hvað ég var gjörsamlega búinn á því, vonbrigðin voru rosaleg. Mér finnst því ekkert skrítið að leikmennirnir skuli hafa tekið þetta inn á sig."

Hörður er þó ekki í neinum vafa að þegar fram líði stundir eigi menn eftir að horfa á þennan árangur liðsins með aðdáun.

„Að ná silfri á Ólympíuleikum, bronsi á Evrópumóti og kannski fimmta sæti á HM er einstakur árangur og ég er ekkert viss um að þetta verði nokkurn tímann toppað."- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.