Dönsk kona mætir á sjöundu Eve-hátíðina sína 17. febrúar 2011 11:00 Hin danska Gitte og persóna hennar í leiknum. „
Ég er nörd og mjög stolt af því," segir danski forritarinn Gitte Karpinski, þaulreyndur spilari íslenska tölvuleiksins EVE Online. Tölvuleikjaframleiðandinn CCP heldur sjöundu aðdáendahátíð EVE Online helgina 24. til 26. mars. Hin 27 ára gamla Gitte hefur mætt á allar hátíðirnar og mætir að sjálfsögðu í ár, en hún spilar leikinn í um tvo tíma á dag. En hvað er svona merkilegt við þessa hátíð? „Maður fær tækifæri til að hitta alla á hátíðinni," segir Gitte. „Allir sem spila leikinn eru á sömu blaðsíðunni og tala um sömu hneykslin og viðburði. Fólk sem stundar reiðmennsku hefur alltaf eitthvað að tala um. Það er eins með leikinn. Allir eru á sama stað og sömu hlutirnir gerast hjá öllum." Í EVE Online stíga spilarar inn í sýndarheim í geimnum. Meira en 360.000 manns um allan heim spila leikinn, sem nýtur vaxandi vinsælda. „Maður eignast vini og óvini í leiknum. Svo mætir maður á hátíðina og hittir einhvern sem maður hefur barist við og fær sér bjór með honum," segir Gitte. Þrátt fyrir að fólk takist á í sýndarheiminum hefur Gitte ekki orðið vör við reiða spilara á aðdáendahátíðunum. „En það er fólk sem maður veit að maður á eftir að kunna illa við," segir hún. „Í flestum tilvikum er góður andi í fólki - ég get hatað einhvern í leiknum en þegar ég hitti manneskjuna gerum við grín hvor að annarri og fáum okkur bjór saman. Ég hef ekki ennþá séð fólk slást vegna einhvers sem gerðist í leiknum. Það er mjög fyndið að sjá erkióvini í leiknum detta í það saman þegar þeir hittast." Gitte kemur ásamt hópi danskra spilara til landsins, en búast má við að hundruð erlendra spilara sæki hátíðina ásamt blaðamönnum og bransafólki. Sjálf ferðast Gitte reglulega um heiminn og hittir aðra spilara. En hvað finnst fjölskyldunni um áhugamálið? „Fjölskyldan mín skilur ekki leikinn, en þau hafa alltaf vitað að ég er frekar sérstök og ekki mjög stelpuleg," segir Gitte létt. „Ég hef alltaf verið mikið fyrir tölvur og leiki. Þau eru búin að átta sig á því að ég spila á leik á netinu á meðan aðrir fara til dæmis á hestbak." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira