Bolurinn hefur fílað þetta 10. október 2011 09:00 Kexvexmiðjan er vinsælasti sjónvarpsþátturinn í íslensku sjónvarpi og hefur tekið við titlinum af Útsvari. Gísli Rúnar Jónsson segir að þeir sem þátturinn átti að höfða til séu augljóslega ánægðir. „
Ég hef ekkert fylgst með viðbrögðunum enda les ég ekki blöðin og hlusta ekki á útvarp og hætti á Facebook fyrir hálfum mánuði síðan,“ segir Gísli Rúnar Jónsson, leikstjóri Kexvexmiðjunnar og annar höfundur þáttanna. Þættirnir eru á dagskrá RÚV á laugardagskvöldum og hafa fengið misgóðar viðtökur. Fjölmiðlapistlar hafa verið skrifaðir og Facebook-síður hafa logað. Áhorfstölur segja hins vegar aðra sögu, þættirnir mælast með yfir þrjátíu prósenta áhorf en Gísla kemur það ekki á óvart. Hann bendir á að slíkt áhorf sé nánast skylda í þessu svokallaða slotti eða dagskrártíma, það séu hvort eð allir að horfa. Hringekjan mældist til dæmis jafnan með um og yfir tuttugu prósenta áhorf í fyrra. „Bolurinn, eins og Bó kallar þetta, hefur fílað þetta og ætlunarverk okkar virðist vera að takast, þeir sem þátturinn átti að höfða til eru ánægðir en síðan er alltaf svolítill hávaði í þeim sem líkar þetta ekki,“ segir Gísli. Gísli Rúnar er öllu vanur í umfjöllun um verk sín og hann rifjar upp að fyrir 23 árum hafi hann gert Heilsubælið fyrir Stöð 2. Þeir þættir nutu töluverðra vinsælda en: „Síðan voru einhver tíu prósent sem voru mjög óánægð og þau virtust hafa greiðan aðgang að fjölmiðlum. Í þau fjörutíu ár sem ég hef verið að gera skemmtiefni man ég aldrei eftir „instant“ jákvæðum og fagnandi viðbrögðum við sjónvarps-eða útvarpsefni,“ segir Gísli. „Hinir óánægðu láta yfirleitt vita af sér fyrst.“- fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Sjá meira