Hafsteini hrósað í Variety 7. nóvember 2011 08:30 Hafsteinn Gunnar er þegar farinn að undirbúa nýja kvikmynd, nú eftir handriti Huldars Breiðfjörð. Hún mun gerast á Flateyri.
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Á annan veg, er sagður vera hæfileikamaður sem kvikmyndaáhugafólk ætti að fylgjast vel með í náinni framtíð í kvikmyndabiblíunni Variety. Kvikmyndin sjálf fær prýðilega dóma og er kvikmyndatöku Árna Filippussonar hrósað sérstaklega. Hafsteinn er núna staddur á kvikmyndahátíð í Lübeck ásamt fleiri íslenskum leikstjórum og hann var að vonum ánægður með dóminn þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Og hann ber sig vel í þýsku borginni. „Það er mjög vel hugsað um okkur hérna,“ segir Hafsteinn en meðal þeirra sem eru að skemmta Þjóðverjanum með myndum sínum eru Rúnar Rúnarsson, Árni Ólafur Ásgeirsson og Sverrir Þór Sverrisson. Á annan veg fékk flotta dóma í íslenskum miðlum þótt aðsóknin hafi ekki verið upp á marga fiska. Hafsteinn er þó ekki af baki dottinn og er þegar farinn að undirbúa næstu kvikmynd en Þórir Snær Sigurjónsson mun framleiða hana. „Þetta er kvikmynd eftir handriti Huldars Breiðfjörð sem við tveir höfum verið að kasta á milli okkar að undanförnu.“ Hafsteinn Gunnar heldur tryggð við Vestfirði því myndin gerist á Flateyri og segir frá manni á þrítugsaldri sem glímir við mikla tilvistarkreppu þegar faðir hans kemur óvænt í heimsókn. Hafsteinn fer að hlæja þegar honum er bent á að þetta verði mynd um tvo menn á Vestfjörðum sem er ekki ólíkt umfjöllunarefninu í Á annan veg. „Ætli þetta verði ekki bara þríleikur um hvernig karlmennska þrífst fyrir vestan.“ - fgg
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira