Þó líði sextíu ár 11. febrúar 2011 11:00 Björgvin Halldórsson fagnar 60 ára afmæli sínu með tónleikum 16. apríl.
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson heldur upp á sextugsafmæli sitt með tónleikum í Háskólabíói á afmælisdegi sínum 16. apríl. Þar verður farið yfir einstakan feril söngvarans allt frá því að hann var kjörinn poppstjarna ársins árið 1969 fram til dagsins í dag með viðkomu hjá HLH, Brimkló og Ðe lónlí blú bojs. Björgvin er einn ástsælasti og afkastamesti flytjandi þjóðarinnar en hann hefur hljóðritað um 900 lög, sjálfur og með öðrum. En skyldi þá ekki vera erfitt að velja lög á tveggja og hálfs tíma tónleika? „Jú, við erum einmitt að því núna. Við reynum bara að velja lög sem endurspegla hvert tímabil af ferlinum,“ segir Björgvin. Björgvin Halldórsson var síðastliðinn nýársdag sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands. „Það var mjög skemmtileg tilfinning og ég lít svo á að ég hafi tekið við þessari viðurkenningu fyrir hönd íslenskra tónlistarmanna,“ segir Björgvin um atvikið. Björgvin segir að erfitt sé að velja minnisstæðustu atvikin af ferlinum, þau séu allt of mörg fyrir upptalningu: „En mér líður eins og þessi 40 ár hafi liðið á örskotsstundu þó að skemmtilegu hlutirnir sitji eftir,“ bætir hann við. Björgvin hefur sett saman hljómsveit sérstaklega fyrir tónleikana en hana skipa margir af færustu hljóðfæraleikurum landsins. Þá kíkja góðir gestir í heimsókn en Eyjólfur Kristjánsson, Jóhanna Guðrún, Krummi, Mugison og Sigríður Thorlacius hafa þegar boðað komu sína og ekki er loku fyrir það skotið að fleiri bætist í hópinn þegar nær dregur. „Hugsunin er að hafa þetta kósí kvöldstund með tónlist og spjalli, við ætlum að ná upp svona tjaldsamkomustemningu,“ segir Björgvin sem er alls ekki orðinn þreyttur á því að troða upp. „Ég finn ekkert fyrir því að hafa náð þessum aldri. Ég hef aldrei verið í betra stuði en einmitt núna.“- drg
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira