Þýskur nafni Geirs Haarde 12. nóvember 2011 06:00 Alex Mannan tók sér notendanafnið Geir Haarde á Facebook því honum þótti margar spurningarnar of persónulegar.
Á samskiptavefnum Facebook er þýskur nafni fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, Geirs Haarde. Pilturinn er þýskur námsmaður sem kaus sér nafnið sem notandanafn á Facebook en í raun heitir hann sjálfur Alex Mannan. Facebook hélt innreið sína til Þýskalands síðar en á Íslandi, þar sem þýskir námsmenn notuðu heldur samskiptavef sem nefnist StudiVZ. Alex segir að þegar hann skráði sig loks sem notanda á Facebook hafi honum þótt sumar spurningarnar sem spurðar voru heldur persónulegar og því ákveðið að finna sér sérstakt notandanafn. „Ég valdi nafnið Geir Haarde þegar ég skráði mig sem Facebook-notanda árið 2008, þá var kreppan þegar komin á fullt. Ég hafði ekki heyrt fyrrverandi forsætisráðherra ykkar nefndan á nafn fyrr en íslenskir fjölmiðlar fóru að fjalla um kreppuna og var því meðvitaður um hver Geir Haarde var og að hann væri umdeild persóna í íslensku samfélagi en vissi að prófílmyndin mundi koma í veg fyrir að fólk færi mannavillt,“ útskýrir Alex. Hann stundar nám í norrænum fræðum með áherslu á sænsku og íslensku við Háskólann í Tübingen. Hann þekkti þegar nokkuð vel til Svíþjóðar en lítið til Íslands og ákvað því að koma í skiptinám hingað til lands haustið 2008. „Það er mikið samstarf milli háskólans míns og Háskóla Íslands og hingað koma oft íslenskir skiptinemar. Ég hafði kynnst nokkrum Íslendingum sem stunduðu nám í Tübingen og þeir voru allir svo indælir að ég ákvað að fara heldur í skiptinám til Íslands en Svíþjóðar.“ Alex segir dvölina á Íslandi hafa farið fram úr öllum hans vonum en að það hafi komið honum töluvert á óvart hversu fullt af andstæðum landið var. „Þið eruð fá en samt er svo mikill stórborgarbragur yfir bæjunum, það rignir stanslaust en þrátt fyrir það er landið lítið gróið og mikið um eyðimerkur. En ég naut næturlífsins, námsins við HÍ, fisksins og bjórsins Kalda.“ Inntur eftir því hvort honum hafi þótt eitthvað neikvætt við land og þjóð nefnir Alex hátt verðlag á matvöru og froðuleysi á bjórnum. „Það vantar froðuna á bjórinn ykkar, án hennar smakkast bjórinn einfaldlega ekki jafn vel. Einu sinni hellti barstúlka í glas fyrir mig og þar sat svolítil froðukolla efst en hún mokaði henni úr og bætti bjór í glasið, hjartað í mér brast,“ segir hann glettnislega að lokum. sara@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira