Edduverðlaunastytturnar komu brotnar til landsins 11. febrúar 2011 11:00 Edduverðlaunastytturnar komu brotnar frá Kína á dögunum. Á myndinni sjást Svavar Halldórsson og Þóra Arnórsdóttir á hátíðinni í fyrra. Fréttablaðið/Daníel „
Ég get staðfest að flutningurinn á styttunum tókst ekki sem skyldi," segir Hilmar Sigurðsson, formaður Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Nánast allar Edduverðlaunastytturnar voru brotnar þegar þær komu til landsins á dögunum. Stytturnar eru 23 og samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins sluppu aðeins fjórar þegar þær ferðuðust þessa rúmlega 7.800 kílómetra leið frá Kína til Íslands. Hilmar segir að einhvers staðar á leiðinni hafi þeim verið umpakkað frá því að þær voru sendar úr málmsteypuverksmiðjunni og að ekki hafi verið gengið nógu vel frá þeim. „Mér skilst að flutningafyrirtækið hafi gert það til þægindaauka - þær eru mjög þungar," segir hann. „Það endaði með því að við fengum mjög margar brotnar styttur hingað heim." Fulltrúar flutningafyrirtækisins brugðust skjótt við þegar Hilmar og félagar létu þá vita af hrakförum Eddanna og hefur þeim verið komið undir læknishendur. „Það er ágætur þúsundþjalasmiður hérna í borginni sem tekur að sér að koma þeim í nothæft ástand," segir Hilmar. „Hann áætlar að hann verði búinn áður en hátíðin fer fram. Þannig að við verðum komnir með allar stytturnar í hús sem verða afhentar 19. febrúar."Sigurður Jón Ragnarsson hjá ÍSA stáli sér um viðgerðina á styttunum. Hann segir væntanlega verðlaunahafa ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur af því að fá ekki stytturnar sínar. „Það er verið að klára þetta. Megnið af styttunum er tilbúið," segir Sigurður. Er þetta með furðulegri verkefnum sem þú hefur fengið á þitt borð? „Nei, nei." Er þetta daglegt brauð? „Já, já, eitthvað svona? Þetta er ekki neitt neitt. Þetta er ekki flókið verkefni. Það tekur tíma fyrir límið að þorna, en stytturnar verða allar tilbúnar eftir helgi." Verða þær jafnvel sterkari fyrir vikið? „Já, sterkari en þær voru í upphafi." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira