Nína Dögg ráðin til að leika Nínu Tryggva 13. nóvember 2011 12:00 Nína og Nína Nína Dögg leikur nöfnu sína og listakonuna Nínu Tryggvadóttur í stórmyndinni Kill the Poet eftir Jón Óttar Ragnarsson. „
Mér líst rosalega vel á myndina, handritið er æðislegt og þetta er virkilega vel skrifuð og falleg saga hjá honum,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir, sem hefur verið ráðin til að leika listakonuna Nínu Tryggvadóttur í stórmynd Jóns Óttars Ragnarssonar, Kill the Poet. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum munu þau Nick Stahl og Anita Briem leika ljóðskáldið Stein Steinarr og myndlistarkonuna Louisu Matthíasdóttur. Nína segir það vera mikinn heiður að fá tækifæri til að leika þessa miklu listakonu Íslendinga. „Ég hef ekki áður verið í hlutverki sögulegrar manneskju og undirbúningurinn verður örugglega allt öðruvísi. En maður verður samt að passa sig á að verða ekki eftirherma, þetta er ekki heimildarmynd,“ segir Nína. Hún á von á barni eftir viku og hafði því ekki gefið sér mikinn tíma til að kynna sér lífshlaup listakonunnar. Nína hyggst hins vegar nýta tímann vel á meðan hún liggur við hlið nýja fjölskyldumeðlimsins. „Þetta er mjög spennandi hlutverk og auðvitað er ég líka pínulítið smeyk við að leika svona goðsagnakennda konu. En þetta er fyrst og fremst áskorun og þau hafa verið yndisleg, Margrét [Hrafnsdóttir] og Jón Óttar,“ segir leikkonan. Eiginmaður hennar, Gísli Örn Garðarsson, hefur einnig samþykkt að leika í myndinni. Ekki hefur þó verið ákveðið hvaða hlutverk hann fer með þar sem ekki liggur fyrir hversu mikinn tíma Gísli hefur vegna anna á öðrum vígstöðum. Samkvæmt upplýsingum frá Margréti er ráðgert að tökur hefjist í Kanada í janúar á næsta ári en þeim verður síðan framhaldið í mars hér á landi. - fgg
Mest lesið Löggan sem gerðist leikari á miðjum aldri Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Löggan sem gerðist leikari á miðjum aldri Á loks réttinn að öllum plötunum sínum „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Sjá meira