Draumastarfið hjá All Saints 22. janúar 2011 18:00 Elísabet Kristófersdóttir stundar nám í fatahönnun í Seattle. Hún stendur sig vel í skólanum og hefur meðal annars hannað fatnað á stúlknasveitina The Charlies. Mynd/Stefanía Reynisdóttir
Nýtt útlit hljómsveitarinnar The Charlies vakti athygli lesenda Fréttablaðsins fyrir skemmstu. Manneskjan á bak við fötin sem stúlkurnar í The Charlies klæddust er Elísabet Kristófersdóttir. Elísabet Kristófersdóttir stundar fatahönnunarnám við The Art Institute of Seattle í Bandaríkjunum og hefur hannað búninga á stúlknasveitina The Charlies. Að sögn Elísabetar er námið fjölbreytt og skemmtilegt og kom það henni skemmtilega á óvart þar sem Seattle er þekkt fyrir ýmislegt annað en hátísku. „Mig langaði ekki í nám í Evrópu heldur eitthvert allt annað. Móðurbróðir minn býr nálægt Seattle og það róaði fjölskyldu mína að vita af mér ekki alveg einni og þess vegna ákvað ég að sækja um í þennan skóla. Skólinn er mjög góður og hér lærum við allt mögulegt, allt frá sníðagerð til markaðssetningar," segir Elísabet, sem kann ágætlega við sig í borginni. „Ég geri nú samt ekki mikið annað en að læra og er fyrir vikið alltaf með hæstu einkunn. En ætli ég færi mig ekki um leið og ég klára námið." Elísabet hefur þekkt Ölmu Guðmundsdóttur, söngkonu í The Charlies, í mörg ár en hún segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hún fór að hanna búninga á sveitina. „Þær voru fastar á flugvellinum í Seattle í tvo daga og ég bauð þeim að gista hjá mér. Þær vildu endilega sjá eitthvað af því sem ég hafði verið að gera í skólanum og báðu mig svo um að hanna eitthvað fyrir sig og ég sagði auðvitað já." Stúlkurnar í The Charlies þóttu meira ögrandi en áður í fötum Elísabetar. fréttablaðið/Daníel Stúlkurnar klæddust meðal annars hönnun Elísabetar þegar þær komu fram á tónleikum á skemmtistaðnum Esju í desember og vakti klæðnaðurinn nokkra athygli áhorfenda. Þá vakti frétt Fréttablaðsins um nýtt útlit sveitarinnar talsverðar umræður. „Ég hafði hannað þetta fyrir tískusýningu í skólanum í fyrra og þær voru mjög hrifnar af þessu sem tónleikadressi. Þetta er auðvitað ekkert sem þú mundir klæðast dagsdaglega," segir hún og hlær. Elísabet lýkur námi nú í vor og langar þá út á vinnumarkaðinn. Aðspurð segir hún draumastarfið vera hjá tískuversluninni All Saints. „Það væri draumur að fá að vinna við sníðagerð hjá því fyrirtæki. Þau eru með svo flókin snið og ég held að það yrði bæði reynsluríkt og skemmtilegt að starfa þar um hríð," segir þessi hæfileikaríka stúlka að lokum. sara@frettabladid.is
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira