Innlent

Reyndu að brjótast inn í hótel

Lögreglunni í Reykjavík var tilkynnt um tvo menn sem væru að reyna að brjóta upp bakdyr á hóteli við Laugaveg um klukkan fjögur í nótt.

Þeir hörfuðu þegar þeir sáu til næturvarðar innandyra, en annar kom aftur og reyndi enn við hurðina, uns lögregla kom og handtók hann á vettvangi og vistaði í fangageymslum. Hann var í annarlegu ástandi, að sögn lögreglu, en hinn er ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×